Skoðun

Skattahækkanir sem beinast gegn Suður­landi

Ásta Stefánsdóttir skrifar

Skattaárátta ríkisstjórnarinnar bitnar illa á Suðurkjördæmi. Boðaður er sérstakur skattur á ferðamannastaði í Bláskógabyggð, sem mun hafa áhrif langt út fyrir sveitarfélagið. Auk þess stendur til að hækka virðisaukaskatt á baðlón, sem eru langflest á Suðurlandi og eru burðarásinn í uppbyggingu þar á síðustu árum. Þá er ótalin hækkun á kílómetragjaldi sem kemur verst niður á landsbyggðinni.

Sveitarstjórnarfólk í uppsveitum Árnessýslu hefur undanfarna daga rætt við ráðamenn. Frasinn „við heyrum hvað þið eruð að segja“ glymur í eyrum, en tilfinningin eftir þessa fundi er að ekki sé tekið mark á þeim rökum sem færð eru fram gegn þessum ótrúlegu áformum. Ráðuneytin vinna ekki saman, enginn hefur heildarmyndina, heldur veltist hver um í sínu sílói og hlustar á bergmál eigin raddar.

Einnig heyrist að „þetta hafi alltaf staðið til“ og ekki átt að koma neinum á óvart. Það stenst ekki, ríkisstjórnin tók sérstaklega fram að ekki stæði til að hækka skatta á ferðaþjónustuna. Bláskógabyggðarskatturinn er eitthvað sem enginn ætti að hafa haft hugmyndaflug til að leggja fram og á ekkert skylt við hugleiðingar um almennt komugjald eða auðlindagjald. Að ráðast á þrjá ferðamannastaði í einu og sama sveitarfélaginu er alger firra. Slíkt felur í sér stórfellda röskun á samkeppnisstöðu fyrirtækja.

Í stað þess að nýta hugmyndir Samtaka ferðaþjónustunnar um að stækka kökuna og vinna að því að ferðamenn stoppi lengur á landinu þá virðist stefnt að því að mylja kökuna niður, engum til hagsbóta. Sumir álíta að það sé heppni að Suðurland sé vinsæll áfangastaður ferðamanna. Það er misskilningur, uppbyggingin á rætur hjá dugmiklu fólki, sem hefur tekið áhættu og haft kjark til að byggja upp og þróa hágæða þjónustu, flest í fjölskyldufyrirtækjum sem hafa byrjað sem litlir sprotar en vaxið og dafnað.

Suðurland horfir fram á ástand sem jafna má til hamfara. Einstaklingar hafa lagt mikið undir fjárhagslega við uppbyggingu, sveitarfélög hafa lagt sitt af mörkum til að taka við íbúafjölgun sem hefur fylgt vexti ferðaþjónustunnar, lagt götur, sótt heitt og kalt vatn í iður jarðar, endurbætt íþróttamannvirki og stækkað leik- og grunnskóla. Allt til að bæta og auka lífsgæði og allt stendur þetta höllum fæti ef ráðast á í aðgerðir þær sem ríkisstjórnin boðar; aðgerðir sem raska samkeppni og er ekki hægt að túlka öðruvísi en sem árás á ferðaþjónustu á afmörkuðu svæði.

Ég skora á þingmenn Suðurkjördæmis að láta til sín taka og koma í veg fyrir þessa fordæmalausu, ósanngjörnu og óskiljanlegu aðför að kjördæminu.

Höfundur er sveitarstjóri Bláskógabyggðar.




Skoðun

Sjá meira


×