Truflað hádegisdjamm í nafni mannréttinda Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 2. mars 2026 14:01 Bella og Anna Markar troða upp í hádeginu á fimmtudag. Aðsend Það verður líf og fjör í hádeginu á fimmtudaginn í Iðnó. Þá ætla UN Women í samvinnu við Benna B-ruff að standa fyrir dansandi hádegishléi til styrktar starfs samtakanna í Palestínu.
Tónlist tengi okkur á magnaðan hátt „Ég vona að fólk mæti og fylli staðinn. Þetta er merkilegur og mjög verðugur málstaður og ef orkan er há þá vex athyglin á málstaðinn samhliða. Tónlist tengir okkur á svo magnaðan hátt, hvað þá þegar fólk kemur saman til að dansa við hana,” segir Benedikt Freyr Jónsson, einnig þekktur undir listamannsnafninu Benni BRuff, um fjáröflunarviðburð sem hann skipuleggur í samstarfi við UN Women á Íslandi. View this post on Instagram A post shared by UN Women Ísland (@unwomeniceland) Viðburðurinn fer fram í Iðnó þann 5. mars, klukkan 12:00-13:00, og er haldinn í tengslum við FO-herferð UN Women á Íslandi og alþjóðlegan baráttudag kvenna, sem fram fer 8. mars ár hvert. Plötusnúðarnir DJ Bellamix69 og DJ Anna Markar sjá um tónlistina. Mestu máli skipti að fylla húsið Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, segir stöðuna í Palestínu enn grafalvarlega og að nú liggi á að tryggja óheftan aðgang mannúðar- og hjálparsamtaka að svæðinu. Hún fagnar framtaki Benedikts, enda málefnið gríðarlega mikilvægt. „Mörg okkar upplifa vonleysi og uppgjöf þegar við lesum allar hræðilegu fréttirnar sem berast okkur alls staðar að úr heiminum. En staðan er sú að það hefur aldrei verið jafn mikilvægt að standa vörð um mannréttindi og mannúð og einmitt núna, þegar vegið er svo harkalega að grundvallarmannréttindum fólks,“ segir Stella og bætir við: „Við höfum heyrt af verkefnum í Palestínu sem hafa það að markmiði að styrkja samfélagið og samhug meðal fólks, og oft eru það konur sem eru drifkrafturinn á bak við þau verkefni. Þannig halda þau samfélaginu saman og halda um leið í vonina um frið og betri framtíð. Það er ástæða fyrir tilurð orðatiltækisins divide and conquer og það virðist svolítið vera staðan um allan heim; það er auðvelt að grafa undan mannréttindum og lýðræði þegar sundrung ríkir. Með því að koma saman á þessum viðburði viljum við efla við samstöðu og sýna að mannúð sé ekki á undanhaldi.“ Frumsýna nýja Fokk ofbeldi herferð Stella og Benedikt vonast til þess að sjá sem flest í Iðnó á fimmtudaginn. Frítt er inn á viðburðinn en hægt verður að styðja við verkefni UN Women í Palestínu með frjálsum framlögum. „Þau sem eru í þeirri stöðu að geta stutt við verkefni UN Women í Palestínu með fjárframlögum geta gert það í gegnum posa og með því að hringja í söfnunarnúmer. En það sem mestu máli skiptir er að við fyllum húsið. Allt telur þegar saman safnast,“ segir Stella og bætir að lokum við: „FO-varan 2026 verður einnig frumsýnd á viðburðinum, en allar tekjur af sölu vörunnar renna óskertar til verkefna UN Women í Palestínu. Vörður tryggingar er bakhjarl FO-herferðarinnar til næstu tveggja ára. FO-herferðin er flaggskip UN Women á Íslandi og hafa yfir 100 milljónir safnast frá árinu 2015, sem runnið hafa í að uppræta kynbundið ofbeldi á heimsvísu.“
Mannréttindi Samkvæmislífið Mest lesið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Sjá meira