Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. mars 2026 15:02 Ąžuolas Tubelis er einn af þremur leikmönnum Kaunas Zalgiris sem fær að taka þátt í leik dagsins. Eitvydas Kinaitis/Euroleague Basketball via Getty Images Þrír leikmenn í Kaunas Zalgiris, toppliði litáensku úrvalsdeildarinnar, fengu leyfi frá félaginu til að spila með landsliði Litáen gegn Íslandi á eftir.
Ąžuolas Tubelis, Ignas Brazdeikis og Mantas Rubštavičius eru því allir skráðir í leikmannahóp dagsins. Þeir tveir fyrrnefndu spiluðu tæpar þrjátíu mínútur í tapinu gegn Íslandi á föstudag en sá síðastnefndi spilaði tæpar tíu mínútur í þeim leik. Kaunas Zalgiris á mikilvægan leik í Evrópudeildinni á fimmtudag gegn Valencia og upphaflega áttu þessir þrír leikmenn ekki að spila seinni leik liðanna, sem hefst núna klukkan 16:30. Ljóst er að Litáen vill ekki upplifa aftur niðurlægjandi tap gegn Íslandi eins og raunin varð síðasta föstudag. Þetta er þó ekki þeirra allra sterkasti hópur en NBA leikmennirnir Domantas Sabonis, Jonas Valanciunas og Matas Buzelis eru ekki með landsliðinu. Tvær breytingar hafa verið gerðar á íslenska landsliðshópnum frá því í síðasta leik. Haukur Helgi Pálsson verður ekki með vegna meiðsla og þá fékk Kári Jónsson leyfi þar sem hann er að verða pabbi á næstu dögum. Í þeirra stað komu tveir leikmenn Álftaness, þeir Sigurður Pétursson og Ragnar Nathanaelsson. Leikur Litáen og Íslands hefst klukkan 16:30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Ronaldo í tárum eftir leik: „Við unnum fyrir Diogo“ Fótbolti Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Íslenski boltinn Dómari útskýrir af hverju Messi slapp en Balogun fékk rautt Fótbolti Átti Amin að sjá rautt? Íslenski boltinn Tæknin kom Portúgal til bjargar og endaði drauma Króata Fótbolti Búinn að hlaupa allar götur í Reykjavík Sport „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Körfubolti Stórstjörnur hætta með landsliðinu eftir að hafa dottið út af HM Fótbolti HM-maður dagsins: Simon er einstakur í sögu HM Fótbolti Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Sjá meira