Þegar nóg er aldrei nóg Stefán Vagn Stefánsson skrifar 4. mars 2026 10:32 Í umræðum á Alþingi sl. mánudag vísaði forsætisráðherra til svokallaðs vanfjármögnunargats ríkisins og tengdi það m.a. við að gjaldskrár ríkisins haldi ekki í við kostnað og þjónustuþróun. Röksemdin var sú að ef ekki sé innheimt nægilega fyrir tiltekna þjónustu myndist gat sem síðan verði að fylla með tekjuöflun eða niðurskurði annars staðar. Það sem vantar í þessa frásögn er einfalt samhengi. Á síðasta ári reyndust tekjur ríkissjóðs um 70 milljörðum króna umfram áætlanir. Á sama tíma blasir við að á árinu 2026 er ríkissjóður að fá um 40 milljarða króna vegna sölu á hugverkaréttindum fyrirtækisins Kerecis. Þetta er án efa fagnaðarefni og það munar um minna. En einmitt þess vegna er eðlilegt að spyrja: Hvaða vanfjármögnunargat er verið að tala um þegar ríkissjóður fær tugum milljarða umfram áætlanir? Eru allir búnir að gleyma yfir 140 milljarða króna útgjaldaaukningu ríkissjóðs milli áranna 2025 og 2026? Ef gat myndast þrátt fyrir slíkar tekjur bendir það til þess að vandinn liggi síður í því að gjaldskrár séu of lágar og frekar í því að útgjöld og nýjar skuldbindingar vaxi hraðar en stjórnvöld ráða við, og að forgangsröðun og aðhald skorti. Af hverju var ekki brugðist strax við? Spurningin sem eðlilegt er að forsætisráðherra svari er þessi: Af hverju var ekki brugðist strax við á síðasta ári með boðaðri hagræðingu, forgangsröðun og færri þensluvaldi aðgerðum ríkisins þegar tekjuauki síðasta árs lá fyrir? Þá ber að hafa í huga að tekjur vegna sölu á Kerecis eru einskiptistekjur. Slíkar tekjur eiga ekki að verða fyrirsláttur fyrir því að fresta nauðsynlegu aðhaldi, heldur eiga þær að nýtast til að styrkja stöðu ríkissjóðs og draga úr verðbólguþrýstingi. Gjaldskrár eru ekki lausn einar og sér Þjónustugjöld eru greiðslur sem tilteknir hópar einstaklinga eða lögaðila greiða hinu opinbera fyrir sérgreint endurgjald eða þjónustu sem veitt er. Slíkum greiðslum er ætlað að standa að hluta eða öllu leyti undir kostnaði við slíka þjónustu. Í einhverjum tilvikum kann að vera réttlætanlegt að uppfæra gjaldskrár og miða hækkun t.d. við verðbólgumarkmið Seðlabanka. En að stilla umræðunni upp sem vali milli gjaldskrárhækkana eða þjónustuskerðingar stenst ekki skoðun nema sýnt sé fram á að allar aðrar leiðir hafi verið reyndar, þar á meðal hagræðing og aukin hagkvæmni. Gjaldskrárhækkanir eru ígildi skattheimtu og leggjast oft þyngst á þá sem þurfa þjónustuna mest. Kjarni málsins er ekki hvort hægt sé að rökstyðja einstaka gjaldskrárbreytingu, heldur hvort ríkisstjórnin hafi raunverulega stjórn á heildarmynd ríkisfjármála. Þegar tekjuáætlanir eru vanáætlaðar um tugmilljarða ár eftir ár og samt er talað um gat, þá kallar það á skýr svör um útgjaldavöxt, skuldbindingar og ábyrgð ríkjandi valdhafa. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokkurinn Alþingi Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar