Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. mars 2026 09:02 Skýrt ákall var um að sett yrðu lög sem tryggja að andlit og rödd einstaklinga geti ekki verið notuð án samþykkis viðkomandi. Getty Rúmlega níutíu prósent landsmanna hafa séð myndskeið sem þau töldu raunverulegt en í ljós kom að búið var til með gervigreind. Þegar þátttakendur í íslenskri rannsókn áttu að giska á myndir búnar til af gervigreind völdu tæp áttatíu prósent ranga mynd.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Fjölmiðlanefndar um viðhorf um gervigreind og áhrif hennar á samfélagið. Þátttakendur í könnun voru spurðir hvort þeir hefðu séð mynd eða myndskeið sem þau töldu raunverulegt en væri búið til af gervigreind og svöruðu 91,6 prósent játandi. Í kjölfarið fengu þátttakendurnir að sjá ljósmyndir af tveimur börnum og áttu að giska hvor myndin væri búin til af gervigreind. Tæp áttatíu prósent töldu mynd A vera búna til af gervigreind en sú er ekki raunin.Fjölmiðlanefnd 79,1 prósent töldu að mynd A væri búin til af gervigreind en raunin er sú að mynd B var búin til af gervigreind. 20,9 prósent giskuðu því á rétta mynd. Þau sem hafa mesta trú á sinni færni þegar kemur að gervigreind, fólk á aldrinum 18 til 39 ára, voru líklegust til að velja ranga mynd. Alls voru 88 prósent af þátttakendum á aldrinum 18 til 29 ára sem völdu ranga mynd en á aldrinum 50 til 59 ára völdu 73,9 prósent mynd A. Ákall eftir lagasetningu Miðað við niðurstöður könnunarinnar notar um helmingur landsmanna gervigreindina vikulega. Tæpur helmingur telur þá að lýðræðinu standi mikil ógn af gervigreind og um þrír af hverjum fjórum að gervigreindin muni auka áróður á Íslandi. Algengast er að fólk nýti sér gervigreindina til að afla sér upplýsinga, til aðstoðar við textaskrif og draga saman texta til lestrar. Tæp tuttugu prósent höfðu notað gervigreindina í að búa til myndir eða myndbönd mánuðinn fyrir könnunina. Miðað við svörin er skýrt ákall um að tryggja betur höfundarrétt og að sett verði lög sem tryggja rétt fólks yfir eigin persónueinkennum. 92,1 prósent þátttakenda vildu lög sem myndu tryggja að andlit og rödd einstaklinga geti ekki verið notuð án samþykkis viðkomandi.
Gervigreind Fjölmiðlar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira