„Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Árni Sæberg skrifar 10. mars 2026 12:15 Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra. Vísir/Ívar Fannar Fjármálaráðherra boðar enn aðgerðir gegn verðbólgu á næstu dögum, líkt og hann gerði fyrir tæpum tveimur vikum. Þá segir hann blasa við öllum að athugasemdir Samtaka atvinnulífsins muni engum árangri skila í baráttunni.
Daði Már Kristófersson boðaði föstudaginn 27. febrúar síðastliðinn aðgerðir gegn verðbólgu á allra næstu dögum. Hann myndi ræða við aðila vinnumarkaðarins strax eftir helgina og ráðast svo í aðgerðir í nokkrum liðum. Síðan þá hefur syrt nokkuð í álinn eftir árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran, með tilheyrandi hækkun heimsmarkaðsverðs olíu og áhrifum hennar á verðlag um allan heim. Samtölin gangi vel Daði Már ræddi málið við Berghildi Erlu Bernharðsdóttur fréttamann að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Þú hefur verið í samtali við vinnumarkaðinn, hvernig stendur málið? „Samtölin ganga bara mjög vel. Þau munu klárast núna í vikunni og ég á von á því að við getum tilkynnt eitthvað mjög fljótt.“ Hjálpi ekki til í bráð Bjarni Benediktsson, sem tók við sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í upphafi mánaðar, ræddi verðbólguna í kvöldfréttum Sýnar í gær og var nokkuð gagnrýninn að aðgerðir stjórnvalda í þeim efnum. Hafið þið verið á einu máli með þessar aðgerðir? „Auðvitað erum við það ekki og varðandi gagnrýni SA, þá blasir nú raunar við, held ég, öllum, að þeirra athugasemdir eru nú ekki líklegar til þess að skila árangri, alla vega ekki í neinni bráð. Hins vegar hefur samtalið verið uppbyggilegt og ég hef verið mjög ánægður með hversu málefnalegt það hefur verið,“ segir Daði Már. Óveðursský Sérðu fyrir þér núna miðað við núverandi ástand, að verðbólgan sé eitthvað að fara að hjaðna? „Það eru auðvitað ákveðin óveðursský. Stríðið í Íran og hækkun á olíuverði veldur okkur áhyggjum. Það er auðvitað innflutt verðbólga sem engar aðgerðir á Íslandi myndu koma í veg fyrir, en það hjálpar okkur ekki í verkefnunum.“
Verðlag Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Atvinnurekendur Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Húrra dregur saman seglin Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Innleiða gervigreindina í MS Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Sjá meira