Skíðaferðin til Sviss endaði á spítala á fyrsta degi Lovísa Arnardóttir skrifar 10. mars 2026 21:56 Bjarni með gifs, spelku og hækju við fjallið í Davos. Aðsend Á fyrsta degi í skíðaferð í Sviss með vini sínum datt Bjarni Magnússon og slasaði sig á bæði hendi og fæti. Hann segir fjölda hafa dottið á sama stað. Eiginkonan sótti hann til Davos og nú bíður hann þess að komast í síðustu aðgerðina og endurhæfingu. „
Í lok febrúar skellti ég mér á skíði með þýskum vini mínum í Davos og St. Anton. Sú gleði tók skjótt enda fyrsta daginn í Davos þegar ég dett illa á klaka,“ segir Bjarni í færslu sem hann birti um málið á Instagram. „Ég var bara óheppinn, ég veit ekki hvort þetta var klaki eða eitthvað annað. Þetta var stutt og brött brekka á mjög langri leið,“ segir Bjarni í samtali við fréttastofu og að leiðin sé í heild um korter til tuttugu mínútur. „Við vorum fjórir saman í herbergi þegar ég mætti og þrír okkar lentu í vandræðum í brekkunni og tveir á sama stað, ég og einn annar,“ segir Bjarni og að brekkan hafi augljóslega ekki verið undirbúin nægilega vel. Bjarni í fjallinu með vini sínum áður en hann datt. Aðsend Fjöldi datt á sama stað Hann segir sér strax hafa verið ljóst eftir fallið að vinstri höndin væri brotin en hann hafi einnig verið með verk í öðru hné. „Á meðan ég beið eftir aðstoð horfði ég á fjölda manns fljúga á hausinn á sama stað, þar með talið ein skíðastúlka sem skíðaði beint á mig þar sem ég sat úti í kanti. Alls ekki góðar aðstæður á þessum stað í brekkunni,“ segir Bjarni. Hann segir ekki algengt að upplifa þetta á stærri svæðum og það sé ljóst að skíðahaldarar á svæðinu þurfi að undirbúa brekkuna betur. „Þýski vinur minn sem ég fór með er lögfræðingur og hann spurði bara hvort ég ætlaði ekki í mál, en ég veit ekki hvort ég nenni því,“ segir hann og að læknarnir hans séu bjartsýnir á að hann nái bata. Útsýnið var í það minnsta gott á spítalanum. Aðsend Vel tekið á spítalanum Vinur hans fylgdi honum svo á spítala þar sem hann segir sér hafa verið afar vel tekið. Hann hafi legið á spítalanum í fjórar nætur þar til eiginkona hans, Helga, kom að sækja hann og fylgdi honum heim. „Það var rosalega góð þjónusta og þú sérð útsýnið á myndinni úr rúminu. Þessu fylgdist ég með á spítalanum,“ segir Bjarni og að á spítalanum hafi starfað færir bæklunarsérfræðingar. Hann segir að í gegnum tryggingar hafi hann fengið skutl í plássmeiri bíl frá Davos og til Zurich þar sem hann gat tekið flug með Icelandair heim. „Strákurinn sem aðstoðaði mig með hjólastólinn á flugvellinum í Zurich byrjaði á því að tala við mig á þýsku en skipti svo bara allt í einu í íslensku. Þá bjó hann á Skeljagranda þar til hann varð ellefu ára,“ segir Bjarni hlæjandi en sjálfur býr hann í Vesturbænum. „Hér heima fór ég svo í segulómmyndatöku og þar kom í ljós að fremra krossband á hægra hné er slitið sem kallar væntanlega á aðgerð í framhaldinu,“ segir Bjarni og að hann bíði rólegur eftir aðgerðinni. Bjarni viðrar sig með dóttur sinni. Aðsend Spenntur að hefja endurhæfingu eftir aðgerð Í færslu sinni segist Bjarni því sjá fyrir sér næstu daga og vikur heima, með stelpunum sínum, en hann ætli sér að hefja endurhæfingu sem fyrst. „Þið sjáið mig nú samt sem áður viðra mig, með gifs og fatla á vinstri hendi og spelku og hækju hægra megin, það gerist ekki betra,“ segir hann léttur í færslunni. Í samtali við fréttastofu segist Bjarni ekki endilega bjartsýnn á að komast á skíði aftur næsta vetur en hann ætli sér að reyna og vona. „Ég er ekkert rosalega bjartsýnn á að komast á skíði næsta vetur, en það má vona. En ég fer aftur á hreyfingu, það er alveg á hreinu,“ segir hann og að hann byrji sjúkraþjálfun áður en hann fer í næstu aðgerð, á slitna krossbandinu. „Nú fer ég bara að koma mér í ræktina á innihjóli og í sjúkraþjálfun. Það er bara næst.“
Skíðasvæði Sviss Íslendingar erlendis Heilbrigðismál Mest lesið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Sjá meira