„Allt lýðræðið þurrkað út“ Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 11. mars 2026 20:32 Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir eru bæði reynslumiklir borgarfulltrúar sem segja lýðræðið hafa verið þurrkað út þegar stillt var upp á lista fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Vísir/Bjarni Djúpur ágreiningur hefur verið innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins allt kjörtímabilið og er hann meðal ástæðna þess að tveir borgarfulltrúar hafa sagt skilið við flokkinn. Þeir ætla að stofna nýjan óháðan borgarstjórnarflokk.
Þau Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir voru meðal sex borgarfulltrúa sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk kjörna í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Þegar listi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var kynntur í lok febrúar kom hins vegar í ljós að hvorugt þeirra var á listanum. Þau gengu í framhaldinu úr Sjálfstæðisflokknum í Miðflokkinn og ætla á fundi forsætisnefndar á föstudaginn að tilkynna um stofnun nýs óháðs borgarstjórnarflokks. Eftir breytingarnar verða borgarstjórnarflokkarnir níu. „Við höfum gengið til liðs við Miðflokkinn þannig að þetta verður eiginlega borgarstjórnarflokkur Miðflokksins en af tæknilegum ástæðum, kerfislægum, þá verðum við óháð gagnvart kerfinu. Við getum þá sagt að við séum svona óháðir borgarar. Það gildir aðallega um kerfið, ritun fundargerða og annað slíkt,“ segir Kjartan. Helgi Áss Grétarsson varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins verður með þeim í borgarstjórnarflokk fram að sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þau segjast hafa heyrt að gerð verði krafa um að þau verði tekin úr öllum nefndum og telja slíkt ólýðræðislegt. Þá segja þau segja ástæðuna fyrir aðskilnaðinum við Sjálfstæðisflokkinn meðal annars vera langvarandi ágreining. „Ég held að það liggi alveg ljóst fyrir. Það hefur verið djúpur ágreiningur innan borgarstjórnarflokksins allt þetta kjörtímabil og þar hafa verið fjölmörg mál sem hafa komið til álita en hæst stendur þetta mál með borgarlínuna,“ segir Marta. Kjartan tekur í sama streng. „Fjölmiðlar hafa nú fjallað um þetta á kjörtímabilinu. Við höfum mikið rætt þetta innan hópsins en ekki mikið verið að bera þann ágreining á borð. Ég tel alveg ljóst að þær vendingar sem hafa orðið síðustu vikur varðandi framboðslista að þar tel ég að þar hafi með markvissum hætti verið að taka út gagnrýnendur Borgarlínu.“ Þá hafi málið orðið til þess að komið var í veg fyrir að þau fengju sæti á listanum og að oddviti flokksins hafi haft sitt að segja um það. „Það var allt lýðræðið þurrkað út á öllum stigum málsins. Það var ekki opið prófkjör. Það var ekki val innan fulltrúaráðsins. Því var afstýrt í leiðtogaprófkjörinu og það var komið hreinlega með handafli í veg fyrir að það yrði kjörið í kjörnefndina. Þannig að aðkoma flokksmanna er engin að þessu vali,“ segir Marta.
Reykjavík Borgarlína Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Fleiri fréttir Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Sjá meira