Magnús hættir hjá Orkusölunni Atli Ísleifsson skrifar 12. mars 2026 14:27 Magnús Kristjánsson hefur stýrt félaginu frá árinu 2008. Orkusalan Magnús Kristjánsson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Orkusölunnar eftir nær tvo áratugi í starfi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að Magnús hafi verið í fararbroddi félagsins nánast frá stofnun þess, eða frá janúar 2008. „Magnús hverfur frá daglegum rekstri þann 1. apríl n.k. en verður áfram til ráðgjafar eftir þörfum til að styðja við þekkingaryfirfærslu og samfelldni í stjórnun fyrirtækisins. Heiða Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðsmála hjá Orkusölunni, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. apríl. Heiða hóf störf hjá Orkusölunni árið 2019 og hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu sölu-, þjónustu- og markaðsstarfs fyrirtækisins. Heiða er með BSc gráðu í sálfræði og MS gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum. Heiða Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðsmála hjá Orkusölunni, mun taka tímabundið við starfi forstjóra. Undir stjórn Magnúsar hefur Orkusalan vaxið og eflst, bæði sem traust fyrirtæki á orkumarkaði og sem eftirsóknarverður vinnustaður. Hann hefur lagt sérstaka áherslu á jákvæða vinnustaðamenningu, samvinnu og að skapa umhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að blómstra og þróast í starfi,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Magnúsi að hann líti til baka með miklu þakklæti. „Það hefur verið sannkallaður heiður að fá að leiða Orkusöluna öll þessi ár og vinna með hæfileikaríku og kraftmiklu starfsfólki. Ég vil þakka samstarfsfólki mínu innilega fyrir samfylgdina, traustið og öll þau verkefni sem við höfum tekist á við saman. Sjálfur hlakka ég mikið til að takast á við ný og spennandi verkefni,“ er haft eftir Magnúsi. Ennfremur segir í tilkynningunni að stjórn Orkusölunnar færi Magnúsi bestu þakkir fyrir farsælt og mikilvægt framlag til félagsins. „Magnús hefur átt stóran þátt í uppbyggingu Orkusölunnar og þeim sterka grunni sem félagið stendur á í dag. Við þökkum honum fyrir framúrskarandi störf og óskum honum velfarnaðar í því sem fram undan er,“ segir Magnús Þór Ásmundsson, stjórnarformaður Orkusölunnar.
Vistaskipti Orkumál Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira