Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Birgir Olgeirsson skrifar 14. mars 2026 15:27 Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir sóun á náttúruauðlindum vegna flutningstakmarkana í raforkukerfinu vera óþolandi. Vísir/Aðsend Flutningstakmarkanir í raforkukerfinu kosta samfélagið árlega milljarða króna í vannýtta orku, skerðingar, rafmagnsleysi og glötuð atvinnu- og launatækifæri. Orkumálaráðherra segir það óþolandi sóun á náttúruvermætum að orka frá virkjunum sitji föst í stað þess að heimili og fyrirtæki um allt land geti nýtt hana.
Landsnet miðar við að um 300 gígawattsstundir á ári nýtist ekki vegna flutningstakmarkana. Tapið er metið nálægt 10 milljörðum króna á ári með hófsömum forsendum en margfalt meira sé miðað við ýtrustu forsendur. Samtök iðnaðarins mátu árið 2024 að kostnaður aðildarfyrirtækja þeirra af skerðingum fyrri helmings þess árs hefði numið 14-17 milljörðum króna. Landsnet metur kostnað vegna fyrirvaralausra rafmagnstruflana upp á 1,5 til 2,5 milljarða á ári og að hann fari vaxandi. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur kynnt áform um breytingar á raforkulögum sem miða að því að flýta og liðka fyrir framkvæmdum vegna flutnings- og dreifiinnviða raforku. „Það er auðvitað þannig að lykillínur í flutningskerfinu voru byggðar á áttunda áratug síðustu aldar og fyrir samfélag sem notaði bara brot af þeirri raforku sem við erum að nota í dag. Þannig að ég hef sagt að það sé í raun óþolandi sóun á náttúruverðmætum að orkan frá virkjunum sem hefur þegar verið ráðist í með tilheyrandi umhverfisraski, af því að virkjanir eru aldrei óumdeildar. Það er óþolandi að þessi orka sitji föst í stað þess að heimili og fyrirtæki um allt land geti nýtt hana,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra. Tillagan felur í sér að sú ófrávíkjanlega krafa verði felld brott að samkomulag hafi náðst eða eignarnám farið fram áður en framkvæmdir geta hafist. Þess í stað verði heimilt að hefja framkvæmdir samhliða samningaviðræðum eða eignarnámsferli, að uppfylltum skýrum skilyrðum og gegn tryggingu. „Réttur landeigenda er mjög ríkur og það er aldrei léttvægt þegar ríkið grípur inn með þessum hætti. Þess vegna auðvitað byggjum við á því að eignarnámi fylgi alltaf fullar bætur fyrir sannanlegt tjón og að þá sé líka horft til óbeinna áhrifa. Og svo liggur auðvitað sönnunarbyrðin alltaf hjá stjórnvöldum. Stjórnvöld þurfa að sýna fram á að það séu almannahagsmunir undir og almannahagsmunir sem standi til framkvæmdanna,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra,“ segir Jóhann Páll. Þannig geti heimdarframkvæmdatími styst um marga mánuði, jafnvel ár, sem þýðir minni kostnaður og meiri ábati. „En það sem við erum að gera auðvitað með þessum lagabreytingum er að, og þar sem þær geta skilað þessar lagabreytingar, er að heildarframkvæmdatími styttist þá um marga mánuði, jafnvel ár. Og hvað þýðir það? Það þýðir lægri fjármagnskostnaður, það þýðir áreiðanlegri áætlanir, meiri fyrirsjáanleiki, minni áhætta vegna verðbreytinga, til dæmis á efni og vinnuafli. Og þetta eru bara algjör grundvallaratriði til þess að skapa fyrirsjáanleika þegar kemur að svona innviðaframkvæmdum. Eignarrétturinn er að sjálfsögðu friðhelgur og hann verður það áfram þótt við hröðum þessu brýna verkefni að laga flutningskerfið okkar.“
Orkumál Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira