John Alford fannst látinn í fangelsinu Freyja Þórisdóttir skrifar 15. mars 2026 10:09 John Alford, leikari, hafði setið inni í tvo mánuði þegar hann lést. Getty Leikarinn John Alford er látinn. Hann lést föstudaginn 13. mars í HMP Bure fangelsinu í Norfolkfangelsi, tveimur mánuðum eftir að hann var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum.
Frá þessu er greint á vef BBC en hinn 54 ára gamli fyrrverandi leikari, þekktur fyrir hlutverk sín í þáttunum Grange Hill og London's Burning, hét réttu nafni John Shannon. Hann hafði verið dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi eftir að hafa verið fundinn sekur um kynferðisbrot. BBC greinir einnig frá því að talsmaður fangelsismálayfirvalda hafi í samtali við þau staðfest andlátið og sagt í yfirlýsingu: „John Shannon lést í fangelsi þann 13. mars 2026. Líkt og með öll andlát í varðhaldi mun umboðsmaður fanga og skilorðsbundinna rannsaka málið.“ John Alford var dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi eftir að hafa gerst sekur um kynferðisofbeldi.Getty Alford, sem bjó í Holloway í Norður-Lundúnum, var dæmdur sekur fyrir fern mismunandi kynferðisbrot gegn fjórtán ára gamalli stúlku og um að eiga samræði við fimmtán ára gamla stúlku. Það var réttað yfir Alford undir hans rétta nafni, Shannon, í St Albans Crown Court í september á síðasta ári. Kviðdómi var sagt að leikarinn hefði keypt vodkaflösku fyrir stúlkurnar tvær sem þær drukku heima hjá vini í Hoddesdon, Hertfordshire, í apríl 2022. John Alford var þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum London's Burning.Getty Hann var fangelsaður fyrir tveimur mánuðum, þann 14. janúar, en Caroline Overton dómari sagði að brotin hefðu haft „veruleg og viðvarandi áhrif“ á líf fórnarlamba hans. Árin 1985 til 1989 lék Alford í barnaþáttum BBC, Grange Hill, þar sem hann lék hinn uppreisnargjarna fyrsta árs nema Robbie Wright. Hann var þó líklega þekktastur fyrir hlutverk sitt sem slökkviliðsmaðurinn Billy Ray í dramaþáttunum London's Burning sem hann tók að sér árið 1993. Alford var seinna rekinn úr þáttunum og dæmdur í níu mánaða fangelsi eftir að hann var sakfelldur fyrir að selja kókaín og kannabis til blaðamanns í leynilegri aðgerð árið 1997.
Andlát Kynferðisofbeldi Bretland England Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira