England

England

Höfuðborg: London. Mannfjöldi: 58,6 milljónir (2024). Flatarmál: 132.932 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Fannst hann ekki geta haldið á­fram

Forsætisráðherra Bretlands segir fráfall fræðimannsins Jason Arday kalla á umhugsun. Arday sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla vegna ásakana um ritstuld sem hann sagði sprottnar af kynþáttafordómum.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn

Jason Arday, sem sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla í síðustu viku í kjölfar ásakana um ritstuld, er látinn 41 árs að aldri. Hann fannst látinn á heimili sínu í Battersea í suðurhluta Lundúnaborgar síðdegis í dag.

Erlent
Fréttamynd

Önnur lestin af sporinu á innan við sólar­hring

Miklar tafir urðu á lestarsamgöngum í Essex á Englandi eftir að lest fór út af sporinu í dag, önnur á jafnmörgum dögum. Um borð voru tæplega 45 farþegar en enginn þeirra slasaðist og lestin hélst upprétt í hamaganginum.

Erlent
Fréttamynd

Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni

Maður er sakaður um að hafa slegið Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra breska Íhaldsflokksins, alls tuttugu og einu sinni með hamri í höfuðið. Widdecombe hafði síðustu ár verið áberandi meðlimur hins breska Umbótaflokks (e. Reform).

Erlent
Fréttamynd

Á­kærður fyrir morðið á Widdecombe

Hinn tuttugu og átta ára Joshua Kerry hefur verið ákærður fyrir morðið á  Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmanni Íhaldsflokksins. Kerry var fyrst handtekinn þann 11. júlí í tengslum við málið en fer fyrir Westminster-héraðsdóm í Bretlandi á þriðjudaginn.

Erlent
Fréttamynd

Vill færa Bretum von á nýjan leik

Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, segir að breskir stjórnmálamenn verði að standa sig betur. Hann segist skilja að kjósendur séu komnir með upp í kok af pólitík í Bretlandi og að yfirvöld og stjórnmálin verði að vinna í hag almennings. Hann segist vilja færa Bretum von á nýjan leik.

Erlent
Fréttamynd

„Konungur norðursins“ sjöundi for­sætis­ráð­herrann á ára­tug

Andy Burnham, nýr leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, tekur við sem forsætisráðherra landsins í dag þegar Keir Starmer hverfur á braut. Starmer mun flytja sína síðustu ræðu sem forsætisráðherra nú fyrir hádegið áður en hann og arftaki hans halda á fund konungs í Buckingham höll, þar sem Karl konungur mun leggja blessun sína yfir valdaskiptin.

Erlent
Fréttamynd

„Dramatískasta viður­eignin í alþjóðafótboltanum“

„Þetta er sennilega dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum, sem er merkilegt í ljósi þess að þessar þjóðir hafa sjaldan mæst og hafa ekki leikið landsleik núna í rúm tuttugu ár,“ segir Stefán Pálsson, sagnfræðingur og fótboltaáhugamaður, um undanúrslitaviðureign Englands og Argentínu sem fram fer í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

„Dapur­legt tíma­bil í sögu ríkis okkar“

Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, var snöggur að skjóta niður pólitískar spurningar er tengjast deilum ríkis hans við Breta um Falklandseyjar. Utanríkisráðherra ríkisins hafði nýtt tækifærið og ýft upp gömul sár í vikunni.

Fótbolti
Fréttamynd

David kemur áhugalausri Victoriu til varnar

Enska knattspyrnugoðsögnin David Beckham hefur komið eiginkonu sinni, kryddpíunni Victoriu Beckham, til varnar eftir að myndir náðust af fjölskyldunni á leik Englands og Noregs á laugardaginn. Á meðan Englendingar ærðust af gleði yfir marki Jude Bellingham þá sat svipbrigðalaus Victoria sem fastast.

Lífið
Fréttamynd

Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn

Á miðvikudagskvöldið mætast England og Argentína í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu en Pablo Quirno utanríkisráðherra Argentínu stakk niður penna við tilefnið og minnti á að deilunni um Falklandseyjar er hvergi nærri lokið af þeirra hálfu.

Erlent
Fréttamynd

Rann­saka morð Widdecombe sem hryðju­verk

Hryðjuverkalögreglan í Bretlandi hefur tekið við rannsókn á andláti Ann Widdecombe sem talin hafa verið myrt. Þessi breyting varð eftir að „nýjar upplýsingar og sönnunargögn“ litu dagsins ljós.

Erlent
Fréttamynd

Segja 2.700 hafa látist vegna hita­bylgju

Talið er að yfir 2.700 hafi látist af völdum hita í Englandi og Wales í kjölfar hitabylgju sem þar geisaði í maí og júní. Rauðar veðurviðvaranir vegna hitans voru gefnar út í lok júní en talið er að flest dauðsföll hafi átt sér stað í júnímánuði þegar hiti náði tæpum 37 stigum. 

Erlent
Fréttamynd

„Mikil saga og mikill sárs­auki“

Töluverð eftirvænting er fyrir Falklandseyjaslag Englands og Argentínu í undanúrslitum á HM karla í fótbolta. Lionel Messi mun etja kappi við enska landsliðið í fyrsta sinn á ferlinum.

Fótbolti
Fréttamynd

Var látin í sólar­hring áður en hún fannst

Lögreglan í Devonskíri í Bretlandi telur Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmann, hafa verið látna í sólarhring áður en hún fannst. 26 ára karlmaður var handtekinn í tengslum við málið en honum sleppt úr haldi og er hann ekki talinn tengjast andlátinu.

Erlent
Fréttamynd

Súrrealískt að spila golf með Trump

Harry Kane, framherji og fyrirliði enska landsliðsins, staðfesti á blaðamannafundi í gær að hann hafi spilað golf með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Hann lýsir því sem heldur „súrrelísrki upplifun“.

Fótbolti
Fréttamynd

Manninum sleppt úr haldi

Manninum sem handtekinn var í gær grunaður um tengsl við morðið á bresku stjórnmálakonunni Ann Widdecombe hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. 

Erlent