Lífið

Óskars­verð­laun til Ís­lands

Jakob Bjarnar skrifar
Íslendingar flækjast víða og í nótt bættist okkur eitt stykki Óskarsverðlaunahafi í safnið: Friðrik Hilmarsson hlaut verðlaun fyrir að vera yfirframleiðandi Sentimental Value sem sigraði í flokki erlendra kvikmynda.
Íslendingar flækjast víða og í nótt bættist okkur eitt stykki Óskarsverðlaunahafi í safnið: Friðrik Hilmarsson hlaut verðlaun fyrir að vera yfirframleiðandi Sentimental Value sem sigraði í flokki erlendra kvikmynda.

Friðrik Hilmarsson hlaut Óskarsverðlaunin í nótt fyrir að vera framleiðandi myndarinnar Sentimental Value sem sigraði í flokki erlendra mynda.

Þau eru ekki mörg Óskarsverðlaunin sem fallið hafa í skaut okkar Íslendinga og því ekki nema von að uppi verði fótur og fit þegar Íslendingur hreppir hið eftirsóknarverða hnoss. Ásgrímur Sverrisson kvikmyndasérfræðingur segir þetta vissulega áfanga:

„Já, sjálf verðlaunin hafa farið til Bjarkar og Sjón fyrir músík í Dancer in the Dark og svo til Hildar Guðnadóttur fyrir tónlist í Joker.“

„Góð spurning. Ég veit það ekki,“ segir Ásgrímur spurður hvort þetta hafi einhverja þýðingu fyrir kvikmyndageirann sem á reyndar nú í vök að verjast.

Ásgrímur Sverrisson hefur fylgst vel með ferli Friðriks Hilmarssonar sem hefur starfað við kvikmyndagerð í Noregi nú í um þrjátíu ár.gísli snær

Ásgrímur hefur fylgst vel með störfum Friðriks í Noregi hvar hann hefur starfað undanfarna áratugi.

„Ég heyri alltaf nokkuð reglulega í honum. Hann gerði leikmyndir fyrir margar norskar myndir um árabil, stýrði svo Rubicon framleiðslufyrirtækinu í Noregi, síðan hjá Viaplay og nú stýrir hann Oslo Film Fund.

Ásgrímur nefnir að Friðrik hafi til að mynda verið framleiðslustjóri á myndinni Thelma sem Joachim Trier gerði fyrir nokkrum árum þannig að þeir eru gamlir samstarfsmenn. Friðrik flutti fyrir mörgum árum til Noregs hvar kvikmyndagerð stendur með miklum blóma, eins og sýnir sig meðal annars í þessum verðlaunum.

„Friðrik kynntist konu sinni Tove í Nonna og Manna, hún var þar fjármálastjóri. Hann fer síðan með henni til Noregs og haslar sér þar völl,“ segir Ásgrímur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.