Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2026 06:30 Savy King þegar hún mætti í viðtalsþáttinn hennar Jennifer Hudson, „The Jennifer Hudson Show“. Getty/ Chris Haston Savy King, liðsfélagi íslensku landsliðskonunnar Sveindísar Jane Jónsdóttur, sneri aftur á völlinn í fyrsta sinn í rúma tíu mánuði þegar hún kom inn á völlinn sem varamaður í sigri Angel City FC á Chicago Stars FC á sunnudagskvöldið.
Hin 21 árs gamla leikkona hafði ekki spilað síðan 9. maí 2025, þegar hún fékk hjartastopp á vellinum í leik gegn Utah Royals. Það tókst að koma henni til bjargar en þetta þýddi að hún þurfti að fara í opna hjartaaðgerð. King hljóp inn á völlinn á 63. mínútu við dynjandi lófaklapp heimamanna á BMO-leikvanginum þegar Angel City leiddi 2-0. Gestgjafarnir skoruðu tvö mörk til viðbótar eftir að King kom inn á og unnu opnunarleik sinn í NWSL-deildinni 4-0. Sveindís Jane lagði upp síðasta markið. Four goals, a clean sheet, and a return from Savy King is more than enough reason to party in LA tonight 🎉Angel City vs Chicago Stars recap presented by @Nationwide pic.twitter.com/OojP3aq1QZ— National Women’s Soccer League (@NWSL) March 16, 2026 View this post on Instagram A post shared by Angel City FC (@weareangelcity) „Ég var ofboðslega stressuð, satt best að segja. En þegar ég kom inn á völlinn hugsaði ég: Ég hef verið hér áður og ég er tilbúin í þetta,“ sagði King eftir leikinn. „Síðustu tíu mánuðir hafa verið ótrúlegir fyrir mig. Mikil vinna, mikið þrek, mikið blóð, sviti og tár sem fólk sá ekki. En ég fann að ég var eins tilbúin og ég gat orðið á þessari stundu og ég vildi ekki láta óttann og hræðsluna við að spila aftur stöðva mig í því sem ég vildi gera,“ sagði King Sumarið 2025 útskrifaðist King úr endurhæfingu og fékk leyfi til að snúa aftur á æfingasvæði Angel City til að æfa án snertingar um haustið. Á undirbúningstímabilinu fékk King fullt leyfi fyrir snertingu og sneri aftur til fullra æfinga með liðsfélögum sínum í Angel City. Both Angel City and Utah Royals came together for Savy King, who exited Friday night's match on a stretcher following a medical event on the field.Alex Loera, who was teammates with King at Bay FC, led the group. pic.twitter.com/cJC3fJymZu— espnW (@espnW) May 10, 2025 Þegar hún sneri aftur á völlinn á sunnudag gat King spilað í rúmar þrjátíu mínútur, sem hún sagði að „skipti öllu máli fyrir sig“ og bætti við að hún væri snortin vegna „Savy King“-söngvanna sem hún heyrði frá stuðningsmönnum Angel City. „Stuðningsmenn okkar hafa staðið með mér í gegnum allt þetta ferli og þeir hafa sent mikla ást og margar bænir,“ sagði King. „Þeir hafa svo sannarlega hjálpað mér mikið í gegnum þennan bata. Þegar mér fannst ég ekki vilja halda áfram voru þeir alltaf til staðar til að styðja mig og lyfta mér upp. Að hafa þá hér og geta spilað fyrir framan þá og sýnt þeim að það sé allt í lagi með mig er bara besta tilfinning í heimi.“ Four goals, a clean sheet, and a return from Savy King is more than enough reason to party in LA tonight 🎉Angel City vs Chicago Stars recap presented by @Nationwide pic.twitter.com/OojP3aq1QZ— National Women’s Soccer League (@NWSL) March 16, 2026
Bandaríski fótboltinn Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Sjá meira