Lífið

Komst á­fram fyrst ís­lenskra kvenna á vængjum fjall­konunnar

Eiður Þór Árnason skrifar
FotoJet (58)

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari kokkalandsliðsins, hefur tryggt sér sæti í aðalkeppni Bocuse D’Or en um er að ræða stærstu kokkakeppni Evrópu. Snædís er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd og er þema hennar í keppninni Fjallkonan.

Hún keppti í Evrópukeppninni í dag ásamt Marlís Jónu Þórunn Karlsdóttur, aðstoðarkonu sinni, og lentu þær í tíunda sæti.

Aðalkeppnin fer fram í Lyon í Frakklandi í janúar á næsta ári. Snædís og Marlís voru búnar að vera að frá því snemma í morgun og var niðurstaðan ljós á sjötta tímanum. Danir lentu í fyrsta sæti, Noregur í öðru og Ítalir í því þriðja. Tíu efstu löndin komust inn í aðalkeppnina.

Rætt var við Snædísi á Vísi um helgina um keppnina en hún sagði þátttöku langþráðan draum. Þar sagði hún þemað allsráðandi í seinni disknum þar sem hún notar silfurvírvirki sem notað er í íslenskum þjóðbúningi kvenna.

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.