Hækka stýrivexti Árni Sæberg skrifar 18. mars 2026 08:30 Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu. Vísir/Vilhelm Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Vextir höfðu fyrir það staðið í stað í 7,25 prósentunum síðan í nóvember síðastliðnum. Síðan þá hefur verðbólga aukist í 5,2 prósent og óvissa í alþjóðamálum einnig aukist. Því höfðu flestir greiningaraðilar spáð hækkun vaxta. Tveir af fimm nefndarmönnum vildu hækka vexti enn
meira
Þannig höfðu til að mynda greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans spáð vaxtahækkun og greininga- og matsfyrirtækið Reitun spáð 25 punkta hækkun. Greiningardeild Arion banka hafði aftur á móti spáð óbreyttum vöxtum. Greint er frá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans í yfirlýsingu sem birt var klukkan 8:30. „Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,50 prósent. Þrír nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en tveir vildu hækka meginvexti um 0,5 prósentur. Flestir hagvísar bera nú vitni um hægari efnahagsumsvif. Þrátt fyrir það hefur verðbólga aukist á ný og mælist nú 5,2 prósent annan mánuðinn í röð. Að nokkru leyti má rekja það til hækkunar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa. Þá bættust við áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana á almennum vinnumarkaði í byrjun árs. Undirliggjandi verðbólga hefur aukist og ekki verið meiri í ríflega ár. Verðbólguvæntingar eru jafnframt teknar að hækka. Mikil hækkun olíuverðs og annarrar hrávöru í kjölfar stigmögnunar átaka við Persaflóa hefur nú þegar leitt til frekari hækkunar á verðbólguvæntingum á skuldabréfamarkaði. Dragist átökin á langinn er hætta á að verðhækkanir breiðist út, ekki síst þar sem verðbólguvæntingar eru eins háar og raun ber vitni. Aukin hætta er því á að endurskoðunarákvæði kjarasamninga muni virkjast síðar á árinu sem gæti aukið enn frekar á undirliggjandi verðbólguþrýsting. Af þessum sökum telur peningastefnunefnd rétt að hækka vexti bankans á ný. Nefndin er jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir í yfirlýsingunni. Vefútsending klukkan 9:30 Vefútsending með kynningu á yfirlýsingu nefndarinnar fer fram klukkan 9:30 en þar munu þeir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu gera grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og sitja fyrir svörum. Fundinum er lokið en unnt er að spóla til baka í spilaranum hér að neðan:
Seðlabankinn Efnahagsmál Íslenska krónan Verðlag Mest lesið Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Sjá meira