Samþykktu að víkja liðhlaupum úr Sjálfstæðisflokknum úr nefndum og ráðum Kjartan Kjartansson skrifar 18. mars 2026 09:16 Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir eru nú óháðir borgarfulltrúar eftir að þau hættu í Sjálfstæðisflokknum. Vísir/Bjarni Meirihluti borgarstjórnar samþykkti tillögu Sjálfstæðisflokksins um að fjarlægja Kjartan Magnússon og Mörtu Guðjónsdóttur úr nefndum og ráðum borgarinnar í gær. Þau yfirgáfu Sjálfstæðisflokkinn og gengu í Miðflokkinn fyrr í þessum mánuði.
Sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins áttu Kjartan og Marta sæti í borgarráði auk ýmissa annarra nefnda og ráða borgarinnar. Fyrri félagar þeirra í Sjálfstæðisflokknum lögðu til að þeim yrði vikið úr þeim sætum í gær. Tillagan var samþykkt með sextán atkvæðum, þar af ellefu atkvæðum meirihlutans í borgarstjórn. Fulltrúar Framsóknarflokksins sátu hjá, að því er kemur fram í frétt Ríkisútvarpsins. Þetta er í annað skiptið á skömmum tíma sem Sjálfstæðisflokkurinn lætur víkja fulltrúum sínum úr nefndum og ráðum. Helgi Áss Grétarsson, fyrsti varaborgarfulltrúi flokksins, missti einnig sæti sín í þeim eftir að hann fór í faðm Miðflokksins í síðasta mánuði. Þau Helgi Áss, Kjartan og Marta hafa þegar tilkynnt forsætisnefnd borgarinnar að þau hyggist starfa saman sem óháðir borgarfulltrúar það sem eftir lifir kjörtímabilsins. Þó að Helgi Áss sé ekki borgarfulltrúi þýðir staða hans sem fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins að skylt sé að kalla hann inn í borgarstjórn ef forföll verða hjá flokknum. Þannig tók Helgi Áss sæti á tveimur borgarstjórnarfundum eftir að hann yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn. Hann þiggur einnig laun frá borginni fyrir að vera fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem er ætlað að greiða fyrir trúnaðarstörf sem fyrstu varaborgarfulltrúar gegna alla jafna fyrir flokka sína, jafnvel þótt hann gegndi engum slíkum trúnaðarstörfum lengur.
Borgarstjórn Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira