Lífið

Gagn­rýni: Veru­leikinn fær fall­ein­kunn. Stóð upp í hléi

Sif Sigmarsdóttir skrifar
Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi.
Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir/Sara Rut

Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu.

Niðurstaða: Tvær stjörnur – ein fyrir að það styttist í páskafrí; önnur fyrir að heimsmarkaðsverð á súkkulaði fer lækkandi.

Misheppnaðir vonbiðlar

Á morgun er alþjóðlegi hamingjudagurinn. Dagurinn er haldinn að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna, sem vilja: a) að við séum hamingjusöm b) að hamingja verði viðurkennd sem grundvallar mannréttindi.

Ólíklegt er að herferðin áorki öðru en að grafa undan hugtakinu mannréttindi, sem missir jafnhratt merkingu sína og Sameinuðu þjóðirnar sýnilegan tilgang sinn.

En það sem Sameinuðu þjóðunum mistekst, tekst misheppnuðum Óskarsverðlauna-vonbiðlum fyrri ára.

Holdsveikisjúklingar Óskarsverðlaunanna

Þótt Óskarinn sé uppskeruhátíð skemmtanaiðnaðarins virðast aðstandendur hans alfarið á móti því að fólk hafi gaman. Grínmyndir eru holdsveikisjúklingar verðlaunanna; ekkert gerir hraðar út um von um tilnefningu en hlátur í bíósal.

Eftirfarandi eru níu gamanmyndir sem fengu ekki Óskarinn en gefa tilefni til að brosa á alþjóðlega hamingjudaginn í tveggja stjörnu veruleika.

1) Groundhog Day (1993)

Forfeður okkar fönguðu físíska endurtekningu hversdagsins í goðsögninni um Sisýfos sem velti sleitulaust steini upp hæð er rúllaði jafnharðan aftur niður brattann. Bill Murray fangaði hins vegar andlega þjáningu endurtekningarinnar í Groundhog Day.

Heimsbyggðin vaknar nú á hverjum morgni upp við nýjasta útspil Bandaríkjaforseta og hugsar: „It’s Groundhog Day. Again.“

Groundhog Day er stærsta yfirsjón Óskarsakademíunnar fyrr og síðar

2) When Harry Met Sally (1989)

Sviplegt andlát bandaríska leikstjórans Rob Reiner og eiginkonu hans Michele Singer Reiner á síðasta ári vakti óhug, en þau fundust látin á heimili sínu í desember eftir stunguárás.

Rob og Michele kynntust við gerð rómantísku gamanmyndarinnar When Harry Met Sally. Hugmyndin að kvikmyndinni spratt upp úr skilnaði Robs. Rob hafði misst trú á ástinni. Í upphaflegu handriti myndarinnar náðu Harry og Sally ekki saman. Áform um nöturleg endalok runnu hins vegar út í sandinn þegar Rob hitti Michele á tökustað. Rob varð yfir sig ástfanginn og sannfærði handritshöfund myndarinnar um að breyta endi myndarinnar svo að henni lyki með hjónabandi.

Rob Reinar hlaut aldrei Óskarsverðlaun, en stjörnur When Harry Met Sally, Billy Crystal og Meg Ryan, minntust Ryner á Óskarsverðlaunaafhendingunni um liðna helgi.

3) Election (1999)

Sveitarstjórnakosningar fara fram í maí. Þeir sem eru þegar orðnir leiðir á rislitlu þrasi fólks sem rífst um það sem enginn er ósammála um ættu að finna fróun í svörtu kómedíunni Election.

Kosningar til nemendaráðs í bandarískum framhaldsskóla minna óþægilega á íslenskar borgarstjórnarkosningar.

Það er útbreidd skoðun að Reese Witherspoon hefði átt að fá Óskarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni sem naut ekki sérstakra vinsælda meðal gesta kvikmyndahúsa en festi sig síðar í sessi sem svo kallaður „költ“ smellur.

4) Back to the Future (1985)

Þeir mörgu sem sjá fortíðina sem ákjósanlegri áfangastað en framtíðina væri hollt að stíga um borð í DeLorean.

5) The Truman Show (1998)

Á tímum TikTok og YouTube er erfitt að verjast þeirri hugsun að alla dreymi um að vera Truman Burbank.

6) Ghostbusters (1984)

Ef aðeins væri jafnauðvelt að kveða niður þá skrípakarla sem herja á samtímann og græna slímdrauginn og sykurpúðakarlinn í Ghostbusters.

7) You’ve Got Mail (1998)

Nora Ephron hóf feril sinn sem dálkahöfundur í New York. Kasólétt komst Nora að því, að eiginmaður hennar, Watergate blaðamaðurinn Carl Bernstein, ætti í ástarsambandi við bestu vinkonu hennar. Sem einstæð móðir ákvað hún að færa sig yfir á ábatasamari starfsvettvang. Hún gerðist handritshöfundur og leikstjóri í Hollywood og varð þekkt fyrir kvikmyndir á borð við When Harry met Sally og Sleepless in Seattle.

Nora Ephron skrifaði bæði handritið að You’ve Got Mail og leikstýrði myndinni. Hinn meinfyndni óður til ástarinnar, kapítalismans og internetsins er ein vanmetnasta gamanmynd síðari ára.

8) This is Spinal Tap (1984)

Þegar við klífum fjöll sjáum við aðeins grjótið undir fótum okkar. Það er úr fjarlægð sem við greinum landslagið.

Fyrsta kvikmynd Robs Reiner naut takmarkaðrar velgengni þegar hún kom fyrst út. Þegar horft er yfir tímans haf blasir hins vegar við að myndin markaði upphaf nýs kvikmyndaforms, sem á ensku kallast „mockumentary“, eða skálduð heimildarmynd.

9) Deconstructing Harry (1997)

Norska kvikmyndin Affeksjonsverdi, betur þekkt sem Sentimental Value, hlaut Óskarinn í ár sem besta erlenda myndin, en hún var einnig tilnefnd í aðalflokknum „besta myndin“.

Leikstjóra myndarinnar, Joachim Trier, hefur ítrekað verið líkt við Woody Allen.

Einhverjum kynni að hrjósa hugur við að vera líkt við Allen, sem ekki hefur átt upp á pallborðið lengi. Myndir hans eiga þó enn hljóðláta aðdáendur.

Deconstructing Harry er ein af minna þekktu myndum Allen. Hún segir frá rithöfundi sem nýtir sér eigið líf og annarra í skrifum sínum með þeim afleiðingum að línan milli veruleikans og þess skáldaða verður óskýr – stundum bókstaflega.

Í tveggja stjörnu veruleika er kannski eina vitið að hverfa á vit þess óraunverulega.


Tengdar fréttir

Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð

Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“.

Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman?

Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá.

Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni

Að skrifa þessa pistla er stundum eins og að vera með harðlífi. Sama hvað ég rembist við að kreista fram hugmyndir koma þær ekki. Það verður því að teljast gráglettið, að fátt losar hraðar um ritstífluna en að þurfa að standa upp til að fara á klósettið.

Í sárum yfir brandara um hrossatyppi

Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur.

Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni

Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns?

Drengurinn sem dó

Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir.

Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí

Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða.

Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“

Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins.

Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði?

Í fyrra fóru fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi. Við upphaf talningar blasti við að Íhaldsflokkurinn hafði beðið afhroð. Það aftraði þó ekki flokksjálkum frá því að halda öðru fram í kosningasjónvarpinu.

Erum við of heimsk til að nota gervigreind?

Ég var á leiðinni í göngutúr í vikunni og vantaði hlaðvarp til að hlusta á. Ég bað ChatGPT um meðmæli. Gervigreindarforritið var ekki lengi að grafa upp hlekki á fimm áhugaverð hlaðvörp um efni sem ég hafði tilgreint, birta um þau útdrátt og tilvitnanir í viðmælendur.

Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður?

Árið 2015 greindi breski rithöfundurinn Matt Haig aðdáendum frá umfjöllunarefni næstu bókar sinnar á Twitter. Viðbrögðin urðu önnur en hann ætlaði.

Lögmálið um lítil typpi

Djúpvitur kona gaf mér eftirfarandi heilræði í kjölfar þess að ég greindi henni frá tilvistarlegri áskorun sem ég stend frammi fyrir: „Þú átt ekki að vera að elta lítil typpi,“ sagði hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.