„Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. mars 2026 20:19 Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastjóri ofbeldis- og kynheilbrigðismála Barnaheilla. vísir/bjarni Áhrifamáttur samfélagsmiðlastjarna sem ala á kvenhatri og öfgafullri karlmennsku nær til ungmenna hér á landi að sögn verkefnastjóra ofbeldis- og kynheilbrigðismála Barnaheilla. Dæmi séu um að ungir drengir komi öðruvísi fram við kvenkyns starfsfólk í skólum og frístund miðað við karlkyns.
Inni í karlahvelinu eða Inside the Manosphere er ný heimildarmynd þar sem Louis Theroux ræðir við vinsæla karlkyns áhrifavalda sem tilheyra öfgafyllstu hlutum karlahvelsins og ala á róttækri karlmennsku og kvenfjandsamlegum viðhorfum. Myndin hefur vakið mikið umtal. Þar er varpað ljósi á hvernig áhrifavaldar stíla inn á óöryggi karlmanna og nýta sér það til að selja aðgang að Onlyfans síðum, fyrirlestrum um hvernig eigi að vera alvöru karlmaður og misjöfnum fjármálaráðum. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastjóri ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheil segir karlahvelið einnig innan landsteinanna. „Já alveg klárlega. Það eru auðvitað engin landamæri þegar það kemur að netinu og okkar ungmenni verða svo sannarlega fyrir áhrifum. Það er alveg klárt mál. Það þarf kannski bara einn eða tveir strákar í hverjum hópi að vera fylgja þessu til að hafa áhrif í allan hópinn. Hún segir þetta þó ekki vera nýtt af nálinni. „Starfsfólk sem vinnur með börnum og unglingum fór að taka eftir áberandi breytingu fyrir tveimur til þremur árum síðan. Það varð allt í einu svakalega mikil aukning í kvenfyrirlitningu og hroka og á sama tíma ótrúlega mikil aukning í útlitsdýrkun hjá strákum og afturhvarf í jafnréttismálum.“ Flestum finnist karlahvelið asnalegt Flestum ungmennum finnist umræddir áhrifavaldar einstaklega asnalegir að hennar mati. Hún tekur fram að flest ungmenni vilji ekki uppfylla þær væningar sem þau finna fyrir á samfélagsmiðlum samkvæmt ungmennaþingum Barnaheilla. „Þá hefur okkur brugðið að skoða niðurstöðurnar vegna þess að þar er til dæmis talað um að stelpur eigi að vera undirgefnar. Þær eiga að vera tilbúnar til að setja þarfir stráka ofar sínum eigin. Þær eiga að fara aftur í eldhúsið á meðan að þeir eigi að græða rosalega mikla peninga, vera rosalega stæltir, vel vaxnir og vera tilbúnir að splæsa endalaust. Það er eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann.“ Hún segir það bitna illa á drengjum að eltast við óraunhæfar ímyndir og óheilbrigða staðla í miðluðu efni. Drengjum finnist þetta ekki endilega eftirsóknarvert en finna fyrir þrýstingi. „Þeir eru að eltast við eitthvað sem er ekki raunverulegt. Í rauninni er þetta dæmi sem er sett upp til að mistakast. Þetta eykur auðvitað pressuna á þá. Við erum að sjá að útlitsdýrkun er komin út í öfgar. Þetta hefur neikvæð áhrif á öll kynin.“ Aukin kvenfyrirlitning Valgeir Þór Jakobsson, formaður Samtaka félagsmiðstöðva eða Samfés, segir hóp drengja koma öðruvísi fram við kvenkynsstarfsfólk en karlkyns. „Neikvætt efni hefur miklu meiri áhrif á athygli okkar en jákvætt og það er bara partur af þessu. Börn og ungmenni eru áhrifagjörn fyrir upplýsingum og ég ítreka hvað það er mikilvægt að eiga samræður við þau.“ Valgeir Þór Jakobsson, formaður Samfés.vísir/bjarni Kolbrún segist einnig kannast við það að drengir komi fram af minni virðingu við konur en karla. „Því miður þá sjáum við aukna kvenfyrirlitingu í garð kvenkyns starfsfólks. Við sjáum það líka í samskiptum kynjanna. Við erum að sjá meiri niðurlægingu í kynferðisbrotum. Bara eins og konur séu minna virði. Það er verið að meiða þær á grófari hátt en áður. Það er meiri fyrirlitning. Því miður.“ Hvað geta foreldrar sem hafa áhyggjur af því að börnin sín séu að horfa á þetta efni gert? „Foreldrar eru mjög miklar fyrirmyndir. Það skiptir máli hvernig við erum að tala heima. Það skiptir líka máli að tala við börnin okkar. Leggja niður símann og gefa sér tíma í að spjalla. Það krefst hugrekkis til að taka spjallið og fá barnið til að rýna inn á við. Hvað er það sem raunverulega skiptir máli?“
Bíó og sjónvarp Samfélagsmiðlar Bretland Kynbundið ofbeldi Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Sjá meira