Telja Musk hafa vísvitandi ýtt undir gerð kynferðislegra djúpfalsana Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. mars 2026 15:45 Elon Musk er ríkasti maður heims. EPA Franskir saksóknarar telja að Elon Musk, eigandi samfélagsmiðilsins X, hafi hvatt til þess að gervigreindin Grok yrði notuð til að búa til kynferðislegar djúpfalsanir. Með því hafi hann aukið virði fyrirtækisins. „
Deilan sem spratt upp vegna kynferðislega grófra djúpfalsana sem Grok (gervigreindarverkfæri X) bjó til gæti hafa verið vísvitandi sett á svið til að auka á fölskum forsendum verðgildi fyrirtækjanna X og X AI fyrir fyrirhugað frumútboð þeirra í júní 2026,“ segir í yfirlýsingu frá embætti saksóknara í París, sem VG greinir frá. Í byrjun janúar hófst rannsókn franskra yfirvalda á framleiðslu Grok, gervigreindarspjallmennis samfélagsmiðilsins X, á fölsuðum klámmyndum af konum. Hundruð kvenna og táningsstúlkna höfðu tilkynnt um að spjallmennið hafi verið notað til þess að „afklæða“ þær. Mánuði síðar var ráðist í húsleit á skrifstofum samfélagsmiðilsins í París í tengslum við rannsóknina. Franskir saksóknarar óskuðu einnig eftir því að fá að yfirheyra Musk sjálfan. Áður en Grok var tekið sérstaklega fyrir höfðu frönsk yfirvöld þegar haft samfélagmiðilinn til rannsóknar vegna ásakana um að algóritmi sé notaður til að hafa áhrif á frönsk stjórnmál. Fleiri ríki eru með Grok til rannsóknar, til að mynda Persónuverndarstofnun Írlands, sem hefur eftirlit með stórum samfélagsmiðlum, og bresk eftirlitsstofnun. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur til skoðunar hvort hægt sé að banna snjallforrit sem byggja á gervigreind þar sem hægt er að búa til slíkar myndir. Grok framleiðir kynferðislegar djúpfalsanir fyrir notendur X og birtir síðan á miðlinum. Meðal kvenna sem hafa verið hlutgerðar á þennan hátt er Ebba Busch, varaforsætisráðherra Svía.
Elon Musk Gervigreind Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira