„Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. mars 2026 19:31 Viktor Gísli Hallgrímsson varði 35 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig í leiknum í dag. vísir/ernir Viktor Gísli Hallgrímsson varði vel þegar Ísland laut í lægra haldi fyrir Svíþjóð, 27-30, í seinni vináttulandsleik þjóðanna í dag. Hann hefði viljað vinna allavega annan leikinn í þessu verkefni en segir að kærkomið tækifæri hafi gefist til að prófa ýmsa hluti. „
Það er svekkjandi að hafa ekki unnið einn leik á heimavelli. Við fengum þetta tækifæri, tvo leiki heima og vera fyrir framan fólkið okkar. Það svíður svolítið mikið,“ sagði Viktor í samtali við Vísi eftir leikinn í Kaplakrika. Minna var skorað í leiknum í dag en í leiknum á fimmtudaginn og varnirnar öflugri. „Eins og við töluðum um eftir leikinn vantaði þetta auka; smá geðveiki og að dekka einn og hálfan mann í staðinn fyrir bara að taka og hugsa um sinn mann. Við gerðum það aðeins betur í dag en fannst mér engu að síður hafa aðeins vantað upp á,“ sagði Viktor. „Við erum að skipta mikið og margir nýir og óreyndir menn sem hafa kannski ekki spilað mikið saman. Það vantar svona þessa tengingu á milli manna sem kemur með tímanum að spila saman.“ Sóknarleikur Íslands var á köflum stirður og kollegi Viktors í sænska markinu, Mikael Appelgren, reyndist íslensku sóknarmönnunum erfiður ljár í þúfu. Viktor segir að höktið í sókninni megi ef til vill skrifa á að allir leikmenn íslenska liðsins séu ekki vanir að spila saman en það verði að prófa nýja hluti. „Þetta eru leikirnir til að prófa eitthvað nýtt. Við þurfum að gera það. Það sást á EM að þegar menn voru orðnir þreyttir vantaði kannski eitthvað aðeins öðruvísi til að brjóta upp leikinn og það er bara eitthvað sem við þurfum að vinna í og tekur bara tíma. Við erum með Ómar [Inga Magnússon] og Gísla [Þorgeir Kristjánsson] sem spila ákveðna týpu af handbolta sem er kannski erfitt fyrir menn sem eru ekki æfa með þeim á hverjum degi að aðlagast á 2-3 dögum. Það er bara eitthvað sem við þurfum að vinna í og það tekur bara tíma,“ sagði markvörðurinn. En hvernig er tilfinningin eftir þessa tvo leiki, þá fyrstu eftir Evrópumótið. „Bara flott. Alltaf leiðinlegt að tapa en við erum að þróa liðið. Við erum að skipta um menn, við erum að koma með nýja hluti og það er það sem við þurfum að gera fyrir framtíðarárangur,“ sagði Viktor. „Við getum ekki alltaf spilað á sama liðinu. Maður verður að þróa sig og það er það sem við erum að gera. Þetta eru leikirnir í það en það er alltaf erfitt að tapa.“
Landslið karla í handbolta Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Fótbolti Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira