Kio Briggs hágrét á tökustað Engla alheimsins Jón Þór Stefánsson skrifar 22. mars 2026 14:46 Kio Briggs var áberandi á síðum blaðanna. Tímarit.is Kio Briggs, einn þekktasti sakborningur Íslandssögunnar, komst í uppnám þegar hann gekk fram á tökustað Engla alheimsins, ómeðvitaður um að verið væri að gera kvikmynd. Þetta kom fram í þættinum Stjörnubíó sem sýndur var í Ríkissjónvarpinu í gær. Þar var kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Englar alheimsins, tekin fyrir. Þegar Briggs mætti óvænt á vettvang var verið að taka upp senu sem varðar sjálfsvíg. Ingvar E. Sigurðsson leikari lá blóðugur á götu í Hátúni, en tökulið myndarinnar var á svölum í blokk fyrir ofan hann. „Þá kemur maður sem hét Briggs, sem var grunaður fíkniefnasali og glæpon, var eitthvað í jailinu. Hann labbaði fram á þessa senu og fór að hágráta. Hann kom bara út úr húsinu, átti leið þarna fram hjá og hélt að hann væri mættur í raunveruleikann. Hann fór að hágráta, honum var ekkert allsvarnað blessuðum manninum,“ sagði Friðrik Þór. Fram kemur í þættinum að tökuliðinu hafi tekist að róa Kio Briggs. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Hver var Kio Briggs? Kio Alexander Ayobambele Briggs var breskur maður sem var handtekinn á Keflavíkurflugvelli þann 1. september 1998, grunaður um að smygla hingað til lands rúmlega tvö þúsund E-töflum með flugi frá Spáni Hann sagðist hafa komið hingað til lands til þess að fá vinnu á togara, og sagðist ekki hafa haft neina hugmynd um fíkniefnin sem falin voru í íþróttatösku hans. Íslendingur hafði hringt í lögreglunna á Spáni og gert henni viðvart um að Briggs væri með fíkniefni í farteskinu. Þá höfðu teikningar af Leifstöð fundist í stuttbuxum í töskunni. Héraðsdómur dæmdi Briggs í sjö ára fangelsi í fyrstu, en eftir nokkuð dómstólaflakk var niðurstaða Hæstaréttar að sýkna hann, of mikill vafi var yfir því hvort hann hafi vitað af E-töflunum. Hann fór svo í bótamál þar sem hann krafðist 27 milljóna króna frá ríkinu, en ekki var fallist á það. Árið 2002 var honum lýst í DV, með vísan til ritsins Ísland í aldanna rás, á þann veg að hann væri „einhver dáðasti sakamaður seinni tíma á Íslandi“. „Einhver dáðasti sakamaður seinni tíma á Íslandi,“ var sagt um Kio Briggs.timarit.is Þekktasta augnablik réttarhaldanna á hendur Briggs var líklega þegar hann var látinn máta stuttbuxurnar, sem hann sagði að væru of stórar á sig. Mat héraðsdóms var að ekki væri hægt að slá því á föstu að fullyrðing hans væri röng. Þótti það minna nokkuð á þegar O.J. Simpson mátaði leðurhanska í einum frægustu réttarhöldum sögunnar. Meðan að Briggs beið þess að fá endanlega niðurstöðu í mál sitt losnaði hann úr gæsluvarðhaldi. Þá var hann ansi áberandi í skemmtanalífinu í Reykjavík og varð að fjölmiðlastjörnu og veitti fjölmörk viðtöl. „Maðurinn var enda fjallmyndarlegur og tilfinningaríkur með ágætum og ekki laust við að ýmsir hrærðust til meðaumkunar þegar hann lýsti því fjálglega hve kramið hjarta hans væri yfir því að hafa setið svo lengi saklaus í fangelsi,“ sagði í áðurnefndri umfjöllun í DV. Skömmu eftir að Briggs var sýknaður hér á landi fengu Íslendingar veður af því að hann hefði verið gripinn í Danmörku ásamt íslenskri konu með sjö hundruð E-töflur. Þau hlutu hvort um sig eins árs fangelsisdóm. Síðan hefur í nokkur skipti verið greint frá því að Briggs hafi komist í kast við lögin, bæði á Spáni og á Bretlandi. Bíó og sjónvarp Einu sinni var... Dómsmál Fíkniefnabrot Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Sjá meira
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Bíó og sjónvarp Einu sinni var... Dómsmál Fíkniefnabrot Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Sjá meira