Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Birgir Olgeirsson skrifar 23. mars 2026 13:07 Haraldur Pálsson er framkvæmdastjóri félagsins Eyjaganga. Við hlið hans má sjá hvernig gangamuninn gæti litið út frá Heimaey. Vísir/Samsett Verkefnið um jarðgöng til Vestmannaeyja er ekki lengur aðeins hugmynd á teikniborðinu. Með tilkomu nýrra hluthafa á borð við Landsbankann og N1 nálgast Eyjagöng nú fjárhagslegt markmið sitt hratt, á sama tíma og undirbúningur jarðgrunnsrannsókna fer af stað í lok apríl.
Eyjagöng safnar fjármagni til að geta hafið rannsóknir á fýsileika slíkra ganga en með nýjustu hluthöfunum nálgast félagið markmiðið sitt óðfluga að safna 200 milljónum króna. Auk Landsbankans er Íslandsbanki einnig í hluthafahópnum en bankarnir tveir voru á sínum tíma lykilaðilar í fjármögnun Hvalfjarðarganga. Þá hafa Bergur-Huginn, dótturfélag Síldarvinnslunnar, og Bylgja VE 75 gengið frá greiðslu hlutafjár ásamt svæðisbundnum bakhjörlum á borð við Eignarhaldsfélag Suðurlands hf., sem er meðal annars í eigu sveitarfélaga á Suðurlandi, og Tölvunar ehf. í Vestmannaeyjum. Áætlað að er göngin verði 18 kílómetra löng og nái niður á 220 metra dýpi undir sjávarmáli.grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Meðal annarra hluthafa eru Vestmannaeyjabær, Rangárþing eystra, Ísfélag hf., Vinnslustöðin hf., DVG Fasteignafélag og Sion ehf. Með rannsóknum yrði dregið úr óvissu varðandi kostnaðinn við að gera 18 kílómetra löng jarðgöng á milli lands og eyja. Fýsileikarannsóknir fara af stað í vor Og það er gangur á verkefninu. Í lok apríl verður hafist handa við kjarnaboranir á Eiðinu í Heimaey. Þegar þeim er lokið verður farið í kjarnaborun í Landeyjasandi við bæinn Kross. Ræktunarsamband Flóa og Skeiða sér um kjarnaboranirnar og er búist við að þeim ljúki í júlí. Því næst verður farið í hljóðbrotsmælingar í sumar sem Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR, munu hafa umsjón með. Gert er ráð fyrir að Vestmannaeyjagöngin opnist í Hánni sunnan við Sprönguna. Hringtorg myndi tengja jarðgöngin við gatnakerfi bæjarins.Eyjagöng ehf. Auk Ræktunarsambands Flóa og Skeiða og ÍSOR njóta Eyjagöng liðsinnis Vegagerðarinnar, verkfræðistofunnar Eflu og ráðgjafafyrirtækisins Völubergs. Óvissan um kostnað hefur staðið í vegi Framkvæmdastjóri Eyjaganga er Haraldur Pálsson en hann segir að gerðar hafi verið skýrslur um möguleikann á jarðgöngum milli lands og eyja. Þær skýrslur séu þó allar því marki brenndar að ekki voru til rannsóknir á fýsileika ganganna, sem gerði kostnaðarmatið illmögulegt. Horft er til að Vestmannaeyjagöng gætu orðið hagvaxtaraukandi og samfélagslega mikilvæg. Vísir Ekki hafi verið vilji fyrir því hjá hinu opinbera að ráðast í slíkar rannsóknir, því var félagið Eyjagöng stofnað til að koma þessum rannsóknum í farveg og lífi í verkefnið. Lokanir Landeyjahafnar styrki málstaðinn „Við viljum meina að göng milli lands og eyja muni hafa mikla hagvaxtaraukningu fyrir Ísland,“ segir Haraldur í samtali við Vísi. Þannig sjái hluthafar hag í þessu verkefni, það er sá samfélagslegi ávinningur sem yrði fyrst og fremst af því. Landeyjahöfn er lokuð að jafnaði 46 daga á ári. Vísir/Egill „Í því samhengi má benda á að það eru 30 dagar síðan síðast var siglt í Landeyjahöfn. Hún er lokuð að jafnaði 46 daga á ári og ferðir falla niður 100 daga á ári,“ segir Haraldur. Veggjald nefnt sem líkleg leið Án nauðsynlegra rannsókna er óvissan enn um sinn of mikil, en vonir standa til að henni verði eytt að mestu með jarðgrunnsrannsóknum sem hefjast í lok apríl. Verði göngin að veruleika yrðu þau væntanlega fjármögnuð með veggjaldi. „En þeir sem þurfa að ferðast á milli lands og eyja greiða veggjald þegar þeir ferðast með Herjólfi. Þannig að fólk er nú þegar vant því,“ segir Haraldur.
Vestmannaeyjar Samgöngur Jarðgöng á Íslandi Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira