Eignaðist fyrstu milljónina fimmtán ára og keypti íbúð átján ára Stefán Árni Pálsson skrifar 25. mars 2026 11:02 Var snögglega farin að velta töluverðum fjármunum sem ungur maður. Athafnamaðurinn Gunnar Þór Gunnarsson keypti fyrsta fornbílinn árið 2017 og þá var ekki aftur snúið.
Nú á hann um fimmtíu fornbíla, stefnir á að tvöfalda flotann og byggja 7500 fermetra fornbílasafn. Gunnar hefur alltaf verið markmiðadrifinn og nær ávallt sínum markmiðum og rúmlega það. Þegar hann var aðeins þrettán ára gamall setti hann sér fyrsta markmiðið - að eignast fyrstu milljónina fimmtán ára. Draumurinn fornbílar Hann vann og vann og náði markmiðinu. Átján ára gamall keypti hann fyrstu íbúðina og tvítugur fjárfesti hann í jörð. Nú, öllum þessum árum síðar setur hann sér enn háleit markmið og getur fjárfest í draumunum sínum, eins og fornbílum. Gunnar á í dag fimmtíu fornbíla. „Ég hef alltaf verið öðruvísi en aðrir,“ segir Gunnar um þennan öfundsverða hæfileika að geta sett sér markmið og náð þeim og verið svo fjárhagslega stöndugur að geta safnað öllum þessum fornbílum, sem kosta svo sannarlega skildinginn. Hann segir það kost að vera öðruvísi og í raun fráleit pæling að ætla að steypa alla í sama mót. Gunnar er líka með heila höfn í vinnslu, Galtarhöfn í Hvalfjarðarsveit. Þar verða einnig hafnar- og atvinnulóðir og Gunnar sér meira að segja fyrir sér að skemmtiferðaskipin muni stoppa þar og gera Vesturlandið að miklum ferðamannasegli. Ísland í dag fékk að kíkja í heimsókn til Gunnars og sjá hluta af aðdáunarverðu fornbílasafninu sem brátt fær heimili í fornbílasafninu við rætur Akrafjalls.
Ísland í dag Bílar Ástin og lífið Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira