Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Lovísa Arnardóttir skrifar 25. mars 2026 14:05 Jón Viðar segir að það eigi að liggja fyrir um kvöldmatarleyti hvort skólahald breytist á morgun vegna veðurs. Vísir/Ívar Fannar og Anton Brink Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins fundar klukkan 17 með sviðsstjórum fræðslusviða höfuðborgarsvæðisins og tekur ákvörðun um skólahald á morgun. Þegar börn eiga að mæta til skóla á morgun verður appelsínugul viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu.
Gul viðvörun er á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan fimm til sjö í fyrramálið og eftir það tekur appelsínugul viðvörun við og er í gildi til klukkan 13. Varað hefur verið við blindhríð og að umferð verði erfið. Jón Viðar Matthíasson, framkvæmdastjóri almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins, segir í samtali við fréttastofu að stefnt sé að því að upplýsingar um skólahald liggi fyrir um klukkan 18 í kvöld og fólk hafi þá fyrirvara til að gera ráðstafanir. Í tilkynningu frá almannavörnum fyrr í dag kom fram að búast mætti við talsverðri snjókomu á höfuðborgarsvæðinu sem muni líklega valda slæmu skyggni og versnandi færð. „Ferðaveður verður varasamt og hætta er á foktjóni. Fólk er hvatt til að tryggja lausamuni og huga vel að öryggi. Ef möguleiki er á er best að vera sem minnst á ferðinni,“ segir í tilkynningu frá almannavörnum vegna veðursins. Viðvaranir um land allt Viðvaranirnar eru þó ekki einungis á höfuðborgarsvæðinu. Á öllu landinu eru gular viðvaranir á morgun og appelsínugular á Suðurlandi, við Faxaflóa og á miðhálendi. Síðustu viðvaranir renna úr gildi um klukkan 20 um kvöldið á Austfjörðum. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir almannavarnir í góðum samskiptum við lögreglu víðs vegar um land og ákvörðun um skólahald liggi hjá sveitarfélögunum. „Við erum í mjög miklum sambandi við lögregluumdæmin og Veðurstofuna og deilum á okkar miðlum. Við erum á tánum og beinum því til fólks að sleppa því að vera á ferðinni ef það getur. En við vitum að við getum ekki sagt við alla að vera heima en ef fólk hefur tök á því að vera ekki á ferðinni er það það sem er best því það einfaldar líf viðbragðsaðila mjög. Það má alveg búast við því að það verði mikið að gera hjá þeim á morgun.
Veður Færð á vegum Skóla- og menntamál Leikskólar Grunnskólar Framhaldsskólar Óveður 26. mars 2026 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira