Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Smári Jökull Jónsson skrifar 25. mars 2026 22:33 Kristinn Árni L. Hróbjartsson er einn af meðstofnendum Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi. Vísir/Bjarni Það varðar þjóðaröryggi að íslensk stjórnvöld hafi ekki lögsögu yfir flutningaskipum í eigu íslenskra fyrirtækja þar sem þau sigla undir erlendum fána. Þetta er mat sérfræðinga sem segja tíma til kominn að stjórnvöld setji þjóðaröryggismál í forgang.
Árið 1987 voru þrjátíu og níu flutningaskip skráð á Íslandi. Í dag er ekkert slíkt skip skráð hér á landi því öll kaupskip íslenskra útgerða sigla undir erlendum fánum. Eldsneyti, matvæli, lyf og aðrar nauðsynjavörur eru því fluttar hingað til lands með skipum sem Ísland hefur enga lögsögu yfir. Þessi staðreynd varðar þjóðaröryggi að mati Vörðu, hugveitu sem vinnur að eflingu þjóðaröryggis. Ef til neyðarástands kæmi gæti Ísland misst aðgang að skipum sem flytja nauðsynjavörur til landsins. Engin ráð ef allt fer í skrúfuna Til samanburðar sendu norsk yfirvöld bréf til þúsunda Norðmanna í janúar um að skip og bílar gætu verið tekin eignarnámi í neyð. Hér á landi væri engin lagalegur grundvöllur til sambærilegra aðgerða þar sem kaupskip íslenskra útgerða sigla undir erlendum fána. Samskip og Eimskip eru íslensk fyrirtæki en skip þeirra skráð erlendis.Vísir/Anton Brink „Sem eyja úti í miðju N-Atlantshafi sem reiðir sig að öllu leyti á innflutning á meira eða minna öllu er tiltölulega óheppilegt, svo ekki sé fastar að orði kveðið, að við höfum engin ráð að grípa inn í ef það fer allt í skrúfuna,“ segir Kristinn Árni L. Hróbjartsson, einn af stofnendum Vörðu sem Heimurinn sé breyttur og kominn sé tími á að stjórnvöld setji þjóðaröryggismál í forgang. „Við erum á þannig stað að við vitum ekkert hvað mun gerast eftir viku eða fimm vikur. Löndin í kringum okkur eru öll að undirbúa sig og gera það mjög vel oft, sérstaklega Norðurlöndin. Það er ekkert sem bendir til þess að við ættum að vera minna undirbúin en önnur lönd út frá einhverju hættustigi,“ bætir Kristinn við. Vill samstarf við Færeyinga Fánaríki skipa ber ábyrgð á öryggi, vinnuvernd og umhverfisvernd þeirra. Í harðri samkeppni leita útgerðir í alþjóðlegar skipaskrár sem bjóða bestu kjörin og þjónustu. Kristinn hvetur íslensk stjórnvöld til að hafa samband við Færeyinga með samstarf um rekstur skipaskrár í huga. „Af hverjum gerum við það? Færeyjar eru með 90 skip á sinni skrá og það er ekki líklegt að við gætum boðið sama þjónustustig og alþjóðleg skipafyrirtæki gera kröfu um með þau fáu skip sem bara íslensk skipafélög eiga. Nema það sé þá mikil meðgjöf hjá ríkinu.“
Skipaflutningar Öryggis- og varnarmál Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Sjá meira