Elsti sonur Ronaldo æfir með Real Madrid Aron Guðmundsson skrifar 26. mars 2026 07:32 Ronaldo Jr. og faðir hans Cristiano Ronaldo. Myndir frá GettyImages Vísir/Samsett Elsti sonur portúgölsku stórstjörnunnar Cristiano Ronaldo, Ronaldo Jr., æfir þessa dagana í akademíu spænska stórveldisins Real Madrid og gæti gengið til liðs við félagið þar sem faðir hans er goðsögn.
Ronaldo Jr. er fimmtán ára gamall og hefur verið á mála hjá akademíu sádi-arabíska félagsins Al-Nassr þar sem faðir hans er á mála núna og hefur verið síðan árið 2022. Fyrr í vikunni æfði Portúgalinn ungi með undir sextán ára liði Real Madrid og gæti svo farið að hann gangi í raðir félagsins í náinni framtíð samkvæmt heimildum The Athletic. Það væri ósanngjarnt gagnvart piltinum unga að ætlast til þess af honum að ná aðeins broti af þeim árangri sem faðir hans hefur náð á sínum glæsta atvinnumannaferli en staðreyndin sú að nafn Ronaldo og Real Madrid eru samofin. Cristiano Ronaldo er markahæsti leikmaður Real Madrid frá upphafi með 450 mörk í 438 leikjum. Hann varði níu árum í herbúðum spænska stórveldisins og vann Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum með liðinu, spænsku úrvalsdeildina í tvígang sem og spænska Konungsbikarinn. Ronaldo Jr. er fæddur í Bandaríkjunum en spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir undir fimmtán ára landslið Portúgal gegn Japan í fyrra og hefur síðan þá reglulega spilað fyrir undir sautján ára lið Portúgal. Cristiano Ronaldo er 41 árs og núverandi fyrirliði portúgalska A-landsliðsins og hefur verið síðan árið 2008. Hann er markahæsti leikmaðurinn í sögu landsliðsins og varð Evrópumeistari með Portúgal árið 2016. Tímabilin 2018/19 og 2024/25 vann Portúgal Þjóðadeild UEFA með Ronaldo innan sinna raða.
Real Madrid CF Spænski boltinn Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Fleiri fréttir Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Sjá meira