„Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ BS verktakar 13. apríl 2026 08:33 Bjarni Hilmar Jónsson hjá BS Verktökum segir bílastæði mikilvægur hluti af umhverfi fyrirtækja og skipulagi atvinnusvæða. Flest fyrirtæki taka því sem sjálfsögðum hlut að bílastæði og aðkomu að byggingum sé vel við haldið, snyrtileg og skýrt merkt. En þannig var það ekki þegar BS Verktakar hófu starfsemi sína árið 1988. „
Þegar við byrjuðum var þetta ekki endilega talin sérgrein,“ segir Bjarni Hilmar Jónsson hjá BS Verktökum en fyrirtækið hefur í tæpa fjóra áratugi séð um viðhald bílastæða og lóða fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og fasteignafélög um allt land. „Bílastæði voru oft bara malbikuð og síðan var ekkert gert fyrr en eitthvað fór að skemmast. Hugmyndin var að bjóða fyrirtækjum reglulega þjónustu og viðhald þannig að bílastæði og aðkoma héldust í góðu ástandi,“ segir Bjarni. „Við sáum snemma að fyrirtæki vildu geta treyst á einn aðila sem sæi um allt sem tengdist bílastæðum og lóðum," bætir hann við. Með tímanum þróaðist þjónustan því í heildarlausnir sem ná yfir allt frá malbiksviðgerðum og merkingum til sópunar, skilta og skipulags bílastæða. Bílastæðið sem hluti af ímynd fyrirtækja Bjarni segir viðhorf til bílastæða hafa breyst mikið frá því BS verktakar hófu störf. Í dag eru bílastæði mikilvægur hluti af umhverfi fyrirtækja og skipulagi atvinnusvæða. BS verktakar malbika við Borgartún. Bílastæðið er í raun fyrsta upplifun viðskiptavinarins af fyrirtæki. Ef aðkoman er snyrtileg og vel við haldið þá skapar það strax jákvæða mynd. Fyrirtæki gera sér í auknum mæli grein fyrir þessu. Þar að auki þurfa merkingar að vera skýrar," segir Bjarni. Það á sérstaklega við þar sem umferð er mikil, til dæmis við verslanir, skrifstofubyggingar og þjónustufyrirtæki. „Viðskiptavinir, starfsmenn og gestir nota bílastæðið daglega og því skiptir máli að það sé bæði öruggt og snyrtilegt. Góð merking, skýrt skipulag og vel við haldið malbik geta skipt miklu máli fyrir bæði öryggi og upplifun.“ Heildarlausnir fyrir fyrirtæki og húsfélög BS Verktakar hafa lagt áherslu á að bjóða viðskiptavinum heildarlausnir á sínu sviði. Þjónustan nær meðal annars yfir: Malbiksviðgerðir Bílastæðamálun og vegmerkingar Vélsópun og hreinsun bílastæða Hellulagnir og gangstéttaviðgerðir Kantsteinsviðgerðir Uppsetningu skilta og merkinga Uppsetningu rafhleðslustöðva fyrir rafbíla „Við reynum að vera fær um að sjá um flest sem tengist bílastæðum og lóðum. Þannig geta fyrirtæki unnið með einum samstarfsaðila sem sér um allt frá viðgerðum til reglulegs viðhalds.“ Tæknin hefur þróast mikið Þrátt fyrir að starfsemin virðist einföld hefur tæknin í greininni þróast töluvert á síðustu áratugum auk þess sem efnin eru betri sem unnið er með. Þar með eru viðgerðir bæði hraðari og endingarbetri en áður. „Við notum til dæmis bæði hefðbundnar aðferðir og hitatækni við malbiksviðgerðir sem gerir okkur kleift að gera við skemmdir á skilvirkan og endingargóðan hátt,“ útskýrir Bjarni. Rafbílar breyta bílastæðum Ein stærsta breytingin á síðustu árum hefur verið fjölgun rafbíla á Íslandi. „Við sjáum stöðugt meiri eftirspurn eftir uppsetningu rafhleðslustöðva. Fyrirtæki og húsfélög vilja vera tilbúin fyrir framtíðina,“ segir Bjarni. þrítugasta og níunda starfsárið hafið Að ná þrjátíu og níu ára starfsaldri er ákveðinn áfangi fyrir fyrirtæki í bygginga- og þjónustugeiranum. „Við höfum starfað í tæp fjóra áratugi og séð atvinnulífið breytast mikið. En grunnurinn er alltaf sá sami: að vinna verkin vel og veita áreiðanlega þjónustu. Ef við höldum því áfram þá hlökkum við til næstu áratuga.“
Byggingariðnaður Vegagerð Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl