„Fólk er bara að vinna minna“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 29. mars 2026 12:24 Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur, og Már Wolfgang Mixa, lektor við viðskiptafræðideild HÍ. Vísir Hagfræðingur segir þá þróun eiga sér stað í hagkerfinu að hagvöxtur standi í stað milli ára og það eigi erfitt með að vaxa. Hann bendir á samdrátt í útflutningsgreinum á Íslandi undanfarin ár. Lektor við viðskiptafræðideild HÍ segir skorta á traust í samfélaginu til aðgerða til að ná tökum á verðbólgu.
Verðbólga jókst úr 5,2 prósentum í 5,4 prósent í mars. Þá voru stýrivextir hækkaðir í úr 7,25 prósentum í 7,5 prósent fyrr í mánuðinum. Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur, og Már Wolfgang Mixa, lektor við viðskiptafræðideild HÍ, ræddu stöðuna á hagkerfinu og leiðir til að ná niður verðbólgu á Sprengisandi í dag. Útflutningur ekki vaxið í tíu ár Konráð segist hafa tekið eftir þeirri þróun undanfarin ár að hagkerfið eigi erfitt með að vaxa. Á því séu ýmsar skýringar. „Eitt af því sem er búið að gerast er að fólk er bara að vinna minna. Sem þarf ekki að vera slæmt. Framleiðniþróun hefur verið í alþjóðlegu samhengi fín, í sögulegu samhengi ekki eins. En það er allavega eitthvað sem veldur því þá að fólk er að vinna minna af því að þetta er ekki bara stytting vinnuvikunnar. Og það sem maður er farinn að óttast, hvað er búið að vera að gerast til dæmis í útflutningi. Þar kemur á daginn að útflutningur á Íslandi hefur ekkert vaxið frá 2017,“ segir Konráð. Þar muni miklu að þá hafi Wow-Air verið með starfsemi. Hefðbundnu útflutningsgreinarnar, svo sem ferðaþjónusta, hafi dregist saman ef eitthvað er. „Ég á erfitt með að sjá að hagkerfið geti farið til mikils vaxtar svona til skamms tíma, nema að gengið gefi eftir og útflutningsgreinarnar nái aðeins vopnum sínum,“ segir Konráð. Þjóðin þurfi að ákveða sig „Þetta er líka dálítið spurning um að velja og hafna, því að ef krónan veikist, myndi það styrkja útflutning. Það væri hið jákvæða. Það þýðir hins vegar að vörur erlendis frá, myndu hækka í krónutali og það færi út í verðlag, ergo, verðbólgan myndi aukast jafnvel enn frekar á nýjan leik,“ segir Már. Hann segir þjóðina þurfa að taka ákvörðun um hvert hún vilji sætta sig við verðbólguna og auka þannig vöxt. Már vekur athygli á þeirri hugmynd sinni að lækka virðisaukaskatt á matvæli og nauðsynjavörur þannig að stýrivaxtahækkanir kæmu síður niður á þá hópa sem finni mest fyrir hækkununum. „Þetta er þensluhvetjandi aðgerð þannig að það þyrfti að vera að koma einhvers konar aðrar skattahækkanir á móti til að vega á móti þessu,“ segir Már. Ekkert traust til aðgerða Már segir að eftir að hafa viðrað hugmyndina hafi margir talað um að smásalar myndu hirða mismuninn, líkt og umræðan hefur verið um olíufélögin eftir að eldsneytisgjöld og vörugjöld á bensíni voru felld niður. „Það skortir traust hér í íslensku samfélagi, á að svona aðgerðir skili einhverju. Og það ríkir alltaf núll traust núna.“ Hann segir höfrungahlaup hafa átt sér stað undanfarið, að einn gjaldaliður hækki annan og þar fram eftir götunum. Hugsanlega komi þessi þróun kjarasamningum haustsins í uppnám. Síðar í viðtalinu segir Konráð að kjarasamningarnir hangi beinlínis á því hver vísitala neysluverðs verður í ágúst. „Ég reikna með því eins og staðan er núna að það séu meiri líkur en minni á að forsenduákvæðið standist ekki,“ segir Konráð. Hér er einungis stiklað á stóru en viðtalið í heild sinni má nálgast hér að neðan.
Sprengisandur Verðlag Efnahagsmál Íslenska krónan Vinnumarkaður Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira