Ferðamennirnir þaulvanir og breytt landslag Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. mars 2026 21:41 Ferðamenn gengu ránshendi um söluskálann í gær. freysnes Óprúttnir aðilar fóru ránshendi um verslunina Freysnes í gær. Eigandi verslunarinnar segir þetta ekki í fyrsta sinn sem eitthvað er tekið ófrjálsri hendi þar. Fólkið hafi verið þaulvant og breytt landslag blasi við á Íslandi.
Um tíu ferðamenn lögðu húsbílum sínum fyrir utan Freysnes í Öræfum og stálu öllu steini léttara í versluninni og stungur inn á sig. Þeir héldu síðan ferð sinni áfram eftir þjóðveginum. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú málið. Greinilega vanir þjófar Eigandi söluskálans segir það fúlt að vita til þess að fólk fari ófrjálsri hendi um verslunina. „Um leið og okkur var sagt þetta þá fór starfsmaður út og náði myndum af bílnum og þá voru þau farin í burtu.“ Og hverju stálu þau? „Bara eins og er í svona túristasjoppum, bæði kex og húfur og alls konar. Þetta er bara sitt lítið af hvoru. Bara svona það sem mann langar í. Örugglega eru þetta ferðamenn því þau halda áfram austur. Þau sem sáu til þeirra sögðu mér nú að þau höfðu greinilega gert þetta áður.“ Hefur áhyggjur af því að þau komist upp með glæpinn Hún segir þetta ekki í fyrsta skipti sem vasaþjófnaður á sér stað í versluninni. Töluvert hefur verið fjallað um vasaþjófnað í miðbæ Reykjavíkur og á þekktum ferðamannastöðum að undanförnu. „Menn vita af þessu að það er mjög oft verið að stela hér og þar og mjög víða. Sko, þetta er náttúrulega kannski eitthvað sem við þurfum öll að fara átta okkur á það er orðið bara breytt landslag hérna á Íslandi. Maður verður að fara opna augun. Ef það er ekki tekið á svona, ef menn komast upp með þetta eins og í þessu tilfelli, þegar það er vitað hverjir þetta eru og annað, þá spyrst þetta út. Heyrðu, það var ekkert mál að fara og gera þetta þarna. Við kannski bara skellum okkur og sækjum bara meira.“ Hún segist ekki ætla að leyfa þessu að hafa of mikil áhrif á sig. „Maður nennir nú ekki að eyða orkunni í það. Maður er öskuillur sjálfur því þetta er ekki eitthvað sem maður er að búast við. Við töldum okkur nokkuð góð að hafa bæði myndir af þeim og myndir af bílnum og sannanir fyrir þessu. Maður er kannski mest pirraður yfir því að svona skuli eiga sér stað. Það þýðir náttúrulega ekki að láta þetta stjórna lífi sínu.“ Lögreglan hefði haft gaman af því að taka á móti þessu „ágæta fólki“ Eins og greint hefur verið frá virðist það hafa misfarist hjá lögreglu að hefja rannsókn um leið og rekstraraðilar Freysness höfðu samband og létu vita af þjófnaðinum. „Við hringdum í lögregluna í gærkvöld og það misfórst eitthvað þarna í milli. Okkar heimalögregla hérna á Hornafirði fékk ekki þessi boð um að þetta hafi skeð, sem mér þykir leitt. Ég held að okkur þyki það jafn leiðinlegt og þeim, því ég er nokkuð viss um að þeir hefðu haft gaman af því að hitta þetta ágæta fólk á leiðinni austur. Þau hefðu örugglega tekið vel á móti þeim ef ég þekki þau rétt. En svona er þetta. Skilaboðin komust ekki alla leið.“ Eru einhver skilaboð sem þú myndir vilja senda til vasaþjófanna ef svo ólíklega vill til að þau eru að horfa? „Ég hefði afskaplega gaman af því að fá að hitta þau. Ég hugsa að maður myndi nú alveg tala íslensku ef maður myndi hitta þau, mjög skýra íslensku.“
Lögreglumál Sveitarfélagið Hornafjörður Mest lesið Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira