„Höfum dílað á jákvæðan hátt við allt sem upp hefur komið“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. mars 2026 22:10 Einar Jónsson, þjálfari Fram, er nokkuð sáttur með tímabilið í heild sinni. Vísir/Vilhelm Einar Jónsson, þjálfari Fram, var niðurlútur er hann mætti í viðtal eftir sex marka tap liðsins gegn FH í átta liða úrslitum Íslandsmótsins í handbolta í kvöld, 27-33.
Tapið í kvöld þýðir að Íslandsmeistarar Fram eru úr leik og komnir í snemmbúið sumarfrí. „Við byrjum bara brösulega. Svo komum við okkur svo sem inn í leikinn í seinni hálfleik, ég man ekki hvort við náðum að jafna eða minnka niður í eitt, en það fór bara mikil orka í það. Við vorum kannski bara að einhverju leyti bensínlausir í lokin,“ sagði Einar. „Ég veit það ekki. Þeir eru góðir, þeir eru physical, þeir eru fastir fyrir, þeir eru sterkir og fastir fyrir þannig að það fer mikil orka í að spila á móti þeim. Svo eru þeir búnir að vera með í kringum 40 prósent markvörslu á móti okkur og við erum að skjóta illa. Það er kannski það sem fer í taugarnar á mér.“ Hann segir að sínir menn hafi farið illa með þá sénsa sem þeir fengu. „Við vorum á köflum sjálfum okkur verstir. Það var líka í fyrri hálfleik þegar við vorum að koma til baka að við vorum að fara illa með hraðaupphlaup og köstum boltanum bara frá okkur. Svo í seinni hálfleik erum við að kasta boltanum frá okkur eða brenna upplögðum marktækifærum. Það er kannski svolítið saga þessa einvígis að einhverju leyti. Við vorum með einhverja 20 skotfeila í síðasta leik og annað eins í kvöld. Það er bara allt of mikið. Markvarslan var góð í síðasta leik, en léleg núna. Það eru svona nokkur atriði sem verða bara að ganga upp hjá okkur til að við getum unnið FH.“ „Við þurfum frammistöðu frá nokkrum leikmönnum. Við þurfum markvörslu og svo þurfum einhverja frammistöðu eins og Viktor (Sigurðsson) átti í dag. Viktor fannst mér góður í dag, en hann var lélegur í síðasta leik, en þá var markvarslan góð. Við náum bara ekki að tengja heildarframmistöðu í hvorugum leiknum frá nógu mikið af mönnum.“ Sáttur með tímabilið Þrátt fyrir að titilvörn Framara hafi ekki varað lengi er Einar nokkuð sáttur með tímabilið í heild sinni. Framarar tóku þátt í Evrópudeildinni og segir hann að félagið hafi lært margt. „Þetta er bara mikil reynsla. Þetta er samt búið að fara allt öðruvísi en við bjuggumst við. Við vorum með allt annað lið, fengum menn seint inn og allskonar svona. Þetta voru miklar breytingar á milli ára, en mér finnst samt búnar að vera miklar framfarir á liðinu. Við vorum mjög flottir eftir áramót og í raun allt frá því um mánaðarmótin nóvember-desember erum við búnir að spila mjög vel. Það eru miklar framfarir á liðinu og við þurfum að reyna að nota þessa reynslu sem þetta tímabil var. Það þarf bara að byggja eitthvað ofan á það. Það er lítið annað að gera þó maður standi hérna og sé hundfúll yfir því að tapa. Við bara töpuðum fyrir betra liði og það er bara þannig.“ Að lokum var Einar spurður að því hvort hann myndi gera hlutina öðruvísi ef hann fengi að spila þetta tímabil aftur. „Þetta er góð spurning,“ sagði Einar eftir nokkuð langan umhugsunarfrest. „Nei, ég held ekki. Sjálfsagt gerir maður einhver mistök hér og þar en í heildina fannst mér og finnst mér við vera á réttri leið. Við þurftum að díla við allskonar þætti í vetur. Það er ekkert bara ég í þessu. Leikmenn, stjórn og allir sem standa að liðinu er þéttur og samheldinn hópur og við höfum bara dílað á jákvæðan hátt við allt sem upp hefur komið.“ „Auðvitað gerir maður einhver mistök, og við gerum það öll, en það er engin eftirsjá. Ég er bara ánægður þannig séð með mína frammistöðu og okkar í heildina,“ sagði Einar að lokum.
Olís-deild karla Fram FH Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Fleiri fréttir Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Sjá meira