Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 2. apríl 2026 12:31 Samfylkingin í Hafnarfirði hefur lagt til við hverja afgreiðslu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu að frítt verði í strætó fyrir börn og ungmenni að 18 ára aldri. Þannig drögum við úr skutli foreldra og minnkum umferðarálag, drögum úr álögum á fjölskyldur, jöfnum tækifæri barna og ungmenna og styðjum við sjálfstæði þeirra. Hingað til hefur meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks ekki sýnt málinu áhuga en núna undir lok kjörtímabilsins hefur aðeins rofað til - og því ber auðvitað að fagna. Skref í rétta átt - loksins Í byrjun febrúar lagði Samfylkingin tillöguna fram í fimmta sinn á kjörtímabilinu. Eftir talsvert japl, jaml og fuður lagði meirihlutinn það til á síðasta fundi bæjarráðs að frítt yrði í strætó að vissum skilyrðum uppfylltum. Þrátt fyrir að tillaga meirihlutans væri bundin skilyrðum og ótímasett er það fagnaðarefni að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samþykki nú loks efnislega tillögu okkar í Samfylkingunni um að frítt verði í strætó fyrir hafnfirsk ungmenni. Það er sannarlega löngu tímabært skref í rétta átt. Staðreyndir skipta máli Bæjarstjóri fjallað svo nýverið um málið á samfélagsmiðlum og lagði sérstaka áherslu á að staðreyndir skipti máli fyrir umræðuna. Þar er ég svo sannarlega sammála bæjarstjóra og hér eru því nokkrar staðreyndir: Það er staðreynd að Samfylkingin hefur lagt það til við afgreiðslu hverrar fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu að frítt verði í strætó fyrir ungmenni að 18 ára aldri í Hafnarfirði, sumsé fjórum sinnum. Það er staðreynd að bæjarstjóri og aðrir fulltrúar meirihlutans hafa fellt þá tillögu við afgreiðslu hverrar fjárhagsáætlunar, sumsé fjórum sinnum. Það er svo staðreynd að Ungmennaráð Hafnarfjarðar hefur lagt sambærilega tillögu fram á kjörtímabilinu og Foreldraráð Hafnarfjarðar hefur lýst yfir stuðningi við tillöguna. Það er staðreynd að á fundi bæjarráðs 5. feb. sl. lagði Samfylkingin það til í fimmta sinn á kjörtímabilinu að frítt yrði í strætó fyrir ungmenni að 18 ára aldri og fylgdi henni svo eftir á fundum bæjarstjórnar þar sem meirihlutinn samþykkti hana ekki. Það er svo líka nöturleg staðreynd að bæjarstjóri ásamt Sjálfstæðisflokknum samþykkti að taka málið af dagskrá síðasta bæjarstjórnarfundar að tillögu forseta bæjarstjórnar. Fulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks beittu meirihlutaafli til þess að koma í veg fyrir óþægilega umræðu á bæjarstjórnarfundi og sköpuðu með því hættulegt fordæmi til framtíðar þar sem vegið var að lýðræðislegri og opinni umræðu í bæjarstjórn. Það er svo að lokum staðreynd að meirihlutinn hefur aldrei, fyrr en nú á lokametrum kjörtímabilsins og þá sem viðbragð við tillögu Samfylkingarinnar, lagt neitt til er varðar gjaldfrjálsan aðgang ungmenna í Hafnarfirði að strætó. Málflutningur jafnaðarfólks skilar árangri Það er auðvitað líka staðreynd að dropinn holar steininn og að batnandi fólki er best að lifa. Jafnaðarfólk í Hafnarfirði býður bæjarstjóra og aðra fulltrúa meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks velkomna um borð í gjaldfrjálsan strætisvagn fyrir hafnfirsk ungmenni. Þar á öllum að geta liðið vel því á endanum er mikilvægast að tillagan nái fram að ganga í þágu ungmenna í Hafnarfirði og að það gerist sem allra fyrst. Jafnaðarfólk vill bæta og einfalda líf hafnfirskra ungmenna og fjölskyldna þeirra. Það er aðalatriðið og þess vegna berst Samfylkingin í Hafnarfirði fyrir málinu og mun gera það áfram svo tryggja megi farsæla niðurstöðu þess - sem fyrst. Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og skipar 3. sætið á lista flokksins í sveitarstjórnarkosningum 16. maí nk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Strætó Hafnarfjörður Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson Skoðun Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Skoðun ESB-aðild eykur áhrif smáríkja. Reynsla Íra er mjög jákvæð Dominic Scott skrifar Skoðun Hvaða Evrópusamband erum við að kjósa um? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Seðlabankastjóri og stríðsöxin Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson skrifar Sjá meira
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun