Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. apríl 2026 14:31 Enzo er varafyrirliði Chelsea og ber iðulega bandið í ítrekaðri fjarveru fyrirliðans Reece James. Crystal Pix/MB Media/Getty Images John Obi Mikel, fyrrverandi miðjumaður Chelsea, skýtur fast á núverandi miðjumann liðsins, Enzo Fernández eftir að sá argentínski kvaðst efast um framtíð sína hjá félaginu.
Enzo sagði í viðtali við ESPN í Argentínu eftir samanlagt 8-2 stórtap fyrir Paris Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu á dögunum að framtíð hans hjá enska liðinu væri óljós. „Ég veit það ekki. Ég einbeiti mér að þessu núna, við eigum eftir að spila átta leiki í ensku úrvalsdeildinni og FA-bikarinn. Svo heimsmeistarakeppnin og við sjáum til eftir það,“ sagði Fernández við ESPN. Ummælin vöktu reiði stuðningsmanna en í kjölfarið greindi Fernández frá ást sinni á Madrídarborg. „Ég segi konu minni alltaf að ef ég þyrfti að velja mér borg til að búa í í Evrópu, þá líkar mér mjög vel við Madríd.“ John Obi Mikel var öflugur á miðju Chelsea í ellefu ár.Mynd/Nordic Photos/Getty John Obi Mikel sem lék fyrir Chelsea í ellefu ár og vann fjölda titla með liðinu gagnrýnir ummæli og framkomu Fernández harðlega í hlaðvarpi sínu, Obi One. „Þetta er ekki leiðtogi,“ sagði Mikel. „Leikmenn eiga að virða leiðtoga og líta upp til þeirra. Leiðtogar stíga ekki fram með svona yfirlýsingar. Þú segir ekki svona lagað eftir að við (Chelsea) höfum verið svívirðilega slegnir út úr Meistaradeildinni, og hann með fyrirliðabandið,“ „Enginn leikmaður er stærri en knattspyrnufélagið. Ef hann hefur fengið nóg, segðu það skýrt og farðu í burtu. Og við höldum áfram,“ segir Mikel enn fremur.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Sjá meira