Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Agnar Már Másson skrifar 4. apríl 2026 19:05 Ertu að ferðast um landið um páskana? Það gæti borgað sig að leggja fyrr af stað heim, þar sem gul viðvörun tekur gildi á mánudag, annan í páskum. Vísir/Vilhelm Vegna veðurs biður lögregla ferðalanga um að huga að því að leggja fyrr af stað um páskana, þar sem gular veðurviðvaranir taka gildi á mánudag, annan í páskum. Viðvaranirnar verða mögulega færðar upp á appelsínugult. Kort Veðurstofu Íslands skartar nú páskalitunum þar sem gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir allt landið á mánudag, annan í páskum. Austan stórhríð nálgast landið og tekur veðurviðvörunin gildi klukkan 8 á mánudagsmorgun og gildir að óbreyttu til klukkan 4 aðfaranótt þriðjudags. Hið alræmda páskahret virðist því ætla að hrella landsmenn þetta árið og Lögreglan á Norðurlandi eystra tekur fram í Facebook færslu að reikna megi með að gefnar verði út appelsínugular viðvaranir fyrir einhver svæði. Veðurstofan hefur gefið svipað til kynna. Lögreglan hvetur því ferðalanga til þess að huga að því, eftir atvikum, að fara fyrr af stað en á öðrum páskadegi ef förinni er heitið á milli landshluta. Í veðurviðvörun segir að það gangi í austan 18 til 28 metra á sekúndu, hvassast syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi. Marcel de Vries veðurfræðingur sagði við Vísi fyrr í dag að veðrið gæti líklegast valdið samgöngutruflunum og jafnvel lokunum á ýmsum fjallvegum. Búast má því við því að þetta muni hafa áhrif á ferðalög margra enda eru páskarnir ein stærsta ferðahelgi ársins og mikill fjöldi á Vestfjörðum, Norðurlandi og á Austurlandi. „Ég held að það verði jafnvel best að ferðast á sunnudag eða þriðjudag,“ sagði veðurfræðingurinn. Viðvörun er einnig í gildi vegna snjóflóðahættu á höfuðborgarsvæðinu og Marcel sagði að töluvert myndi bæta í snjóinn á mánudag. Veðurviðvörun Veðurstofu Íslands: Austan stórhríð á mánudag (Gult ástand) 6 apr. kl. 08:00 – 7 apr. kl. 04:00 Gengur í austan á 18-28 m/s, hvassast syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi. Spáð er talsverðri eða mikilli snjókomu, einkum sunnan- og austantil. Hlýnar smám saman um kvöldið og fer að rigna sunnantil. Búast má við talsverðum samgöngutruflunum og versnandi akstursskilyrðum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Víða hefur verið þungfært um landið allt í dag. Þá var ófært á Hólaheiði, Raufarhafnarvegi, Brekknaheiði og Sandvíkurheiði í morgun. Veður Færð á vegum Umferðaröryggi Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Bein útsending: Hvert renna peningar ríkisins á næsta ári? Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Veður Fleiri fréttir Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Sjá meira
Kort Veðurstofu Íslands skartar nú páskalitunum þar sem gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir allt landið á mánudag, annan í páskum. Austan stórhríð nálgast landið og tekur veðurviðvörunin gildi klukkan 8 á mánudagsmorgun og gildir að óbreyttu til klukkan 4 aðfaranótt þriðjudags. Hið alræmda páskahret virðist því ætla að hrella landsmenn þetta árið og Lögreglan á Norðurlandi eystra tekur fram í Facebook færslu að reikna megi með að gefnar verði út appelsínugular viðvaranir fyrir einhver svæði. Veðurstofan hefur gefið svipað til kynna. Lögreglan hvetur því ferðalanga til þess að huga að því, eftir atvikum, að fara fyrr af stað en á öðrum páskadegi ef förinni er heitið á milli landshluta. Í veðurviðvörun segir að það gangi í austan 18 til 28 metra á sekúndu, hvassast syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi. Marcel de Vries veðurfræðingur sagði við Vísi fyrr í dag að veðrið gæti líklegast valdið samgöngutruflunum og jafnvel lokunum á ýmsum fjallvegum. Búast má því við því að þetta muni hafa áhrif á ferðalög margra enda eru páskarnir ein stærsta ferðahelgi ársins og mikill fjöldi á Vestfjörðum, Norðurlandi og á Austurlandi. „Ég held að það verði jafnvel best að ferðast á sunnudag eða þriðjudag,“ sagði veðurfræðingurinn. Viðvörun er einnig í gildi vegna snjóflóðahættu á höfuðborgarsvæðinu og Marcel sagði að töluvert myndi bæta í snjóinn á mánudag. Veðurviðvörun Veðurstofu Íslands: Austan stórhríð á mánudag (Gult ástand) 6 apr. kl. 08:00 – 7 apr. kl. 04:00 Gengur í austan á 18-28 m/s, hvassast syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi. Spáð er talsverðri eða mikilli snjókomu, einkum sunnan- og austantil. Hlýnar smám saman um kvöldið og fer að rigna sunnantil. Búast má við talsverðum samgöngutruflunum og versnandi akstursskilyrðum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Víða hefur verið þungfært um landið allt í dag. Þá var ófært á Hólaheiði, Raufarhafnarvegi, Brekknaheiði og Sandvíkurheiði í morgun.
Veðurviðvörun Veðurstofu Íslands: Austan stórhríð á mánudag (Gult ástand) 6 apr. kl. 08:00 – 7 apr. kl. 04:00 Gengur í austan á 18-28 m/s, hvassast syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi. Spáð er talsverðri eða mikilli snjókomu, einkum sunnan- og austantil. Hlýnar smám saman um kvöldið og fer að rigna sunnantil. Búast má við talsverðum samgöngutruflunum og versnandi akstursskilyrðum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám.
Veður Færð á vegum Umferðaröryggi Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Bein útsending: Hvert renna peningar ríkisins á næsta ári? Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Veður Fleiri fréttir Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Sjá meira