Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Sauna 8. apríl 2026 09:23 Verslunin Sauna býður upp á gott úrval af útisánum, sánum, þurr- og blautgufum og infraklefum. Kynntu þér úrvalið á sauna.is. Verslunin Sauna í Kópavogi hefur um nokkurra ára skeið boðið upp á gott úrval af útisánum, sánum, þurr- og blautgufum og infraklefum. Mikil sprenging hefur orðið í sölu þessara vara undanfarin tvö ár, svo mikil að kalla mætti hana eitt nýjasta æði landsmanna. „
Við sjáum sérstaklega mikla aukningu í sölu til heimila,“ segir Jón Kornelíus, framkvæmdastjóri Sauna. „Það er búin að vera ákveðin vitundarvakning um tíma um gagnsemi sána fyrir heilsuna þar sem stuðst er við ótal rannsóknir, bæði nýjar og gamlar.“ Jón Kornelíus er framkvæmdastjóri Sauna. Fullbúnar útisánur sem hafa slegið í gegn Sala útisána hefur sprungið út undanfarin tvö ár og býður Sauna upp á gott úrval í ýmsum stærðum og gerðum. „Útisánurnar koma allar fullbúnar með ofni, einangrun og lýsingu. Í raun er þetta bara „plug and play“, við hífum þær inn á lóðir viðskiptavina og þær eru bara tilbúin til notkunar. Hægt er að velja á milli tíu stærða auk þess sem við getum líka sérsniðið þær eftir þörfum hvers og eins. Þá er t.d. hægt að breyta litnum, hæðinni og fleiri þáttum. Það ferli tekur bara aðeins lengri tíma.“ Vinsældir Infra-rauðra klefa aukist mjög mikið Það færist einnig í vöxt að fólk setji upp infraklefa heima hjá sér eða svo kallaða infra-rauða klefa. „Þeir eru töluvert einfaldari í uppsetningu og ekki þarf að huga að loftræstingu á sama hátt. Kefarnir sem við seljum eru hannaðir með CarbonFlex hita panil sem gefur jafnan hita um allan klefann þannig að geislarnir umliggja allan líkamann. Infra-rauðir klefar henta sérstaklega vel til að hita upp vöðva, hjálpa við bakverkjum, auka liðleika, minnka vöðvabólgu og til að koma í veg fyrir meiðsl.“ Vinsældir infra-rauðu klefanna hafa ekki farið framhjá landsmönnum en þeim hefur t.d. fjölgað mikið í sundlaugum landsins. „Við settum m.a. upp stærsta infra-rauða klefa landsins í Vesturbæjarlaug í Reykjavík fyrir síðustu jól ásamt tveimur sánum. Innrauði klefinn þar er alltaf smekkfullur og komast færri að en vilja. Einnig heyrum við reglulega um fólk sem keyrir sérstaklega í sundlaugar þar sem við höfum sett upp slíkan búnað, eins og í Árbæjarlaug og Lágafellslaug í Mosfellsbæ. Einnig má benda á að infra-rauði klefinn hjá Heilsustofnun NFLÍ í Hveragerði er frá okkur.“ Hægt að sérsmíða eftir þörfum hvers og eins Starfsfólk Sauna sérsmíðar einnig saunur fyrir heimili, fyrirtæki og opinbera aðila. „Þá þurfum við allar nauðsynlegar upplýsingar, t.d. grófa teikningu af rýminu þar sem lengd, hæð og breidd sjást. Við þurfum líka upplýsingar um hvar staðsetja skuli hurð og glugga og hvort saunan verði innanhúss eða staðsett í útihúsi og hvort eins eða þriggja fasa rafmagn sé til staðar. Síðan útvegum við allt efni og klárum málið.“ Sauna býður upp á gott úrval af viðartegundum og ýmsar skemmtilegar útfærslur í hönnun. „Margir sem óska eftir sérsmíði hafa sterkar skoðanir og vilja ekki bara hefðbundið sánaherbergi með dæmigerðri veggklæðningu og bekkjum heldur smekklega hannað rými með sér karakter. Þannig má því segja að hver lausn sé einstök.“ Sem dæmi um sérsmíðaðar saunur nefnir Jón staði á borð við Hótel Kef Spa, Laugarás Lagoon, Skógarböðin á Akureyri, Vesturbæjarlaug og Bláa lónið. Blautgufur og pottar alltaf klassískir Auk fyrrnefndra vara býður Sauna m.a. upp á blautgufur og heita og kalda potta. „Við höfum sett upp fjölmargar blautgufur á sundstöðum, hótelúm og ýmsum lónum um land allt.“ Tilbúnu blautgufurnar eru afar auðveldar í uppsetningu en veggirnir eru úr hertu öryggisgleri. „Einangrað þakið kemur í veg fyrir hitatap og lekamyndum auk þess sem auðvelt er að þrífa þá. Klefarnir eru auk þess hannaðir þannig að hljóðmyndun er í algjöru lágmarki.“ Að lokum má nefna heita og kalda potta. „Við bjóðum upp á margar stærðir af rafmagnspottum, kaldan pott frá Avant Pool og Drop Pisara pottaskel sem kemur í þremur litum. Auk sem seljum við fjölda fylgihluta og hreinsiefni fyrir pottana.“ Verið hjartanlega velkomin í verslun Sauna að Smiðjuvegi 1 í Kópavogi.
Heilsa Gufuböð Mest lesið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið La Gradiva hlaut Gullna lundann Bíó og sjónvarp Húðin breytist með aldrinum Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu Lífið samstarf Fleiri fréttir Húðin breytist með aldrinum Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira