„Í hausnum á mér er ég orðinn þessi maður“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. apríl 2026 08:02 Emin Kadri Eminsson er fyrsti íslenski heimsmeistarinn í hnefaleikum, hann á bara eftir að láta draumana verða að veruleika. vísir / lýður valberg Eftir að hnefaleikakvöldinu í Gamla Bíói var slegið á frest er Emin Kadri Eminsson óviss um hvenær eða við hvern hann mun berjast næst. Hann er þó orðinn vel vanur óvissunni eftir rúmt ár sem atvinnumaður í íþróttinni og stefnir alla leið í boxinu.
Þrátt fyrir þetta óvissuástand var Emin mættur á æfingu í hnefaleikaklúbbi Kópavogs í gær þar sem Sportpakki Sýnar leit við. Hann átti að berjast næsta föstudag og ætlaði svo að skella sér í smá frí eftir langa törn. Bardaga hans á föstudaginn var hins vegar aflýst þannig að Emin veit ekkert hvað gerist næst en hann er líka orðinn nokkuð vanur því að vera í þessari stöðu. „Já síðasta árið hefur verið svolítið mikið upp og niður af þessu. Alltaf einhverjir andstæðingar að draga sig úr keppni, ég að veikjast eða meiðast eða eitthvað þannig. Þetta hefur verið mjög langt og erfitt ferli, síðastliðið ár, þannig að ég er alveg vanur þessu. Og ef við getum ekki komist í gegnum það að einhverjum bardaga sé frestað eða einhverjar aðstæður koma upp sem við stjórnum ekki, þá erum við ekkert að fara að meika það í þessu.“ Orðinn heimsmeistari í hausnum Og þú ert með stefnuna þar, að meika það í þessu? „Í hausnum á mér er ég kominn þangað. Í hausnum á mér er ég orðinn þessi maður, bestur í heiminum, ég er heimsmeistari, fyrsti Íslendingurinn til að vera það. Ég á bara eftir að sanna það fyrir heiminum, að ég sé þessi manneskja sem ég segist vera.“ Heimsmeistaratitilinn er ekki í augsýn enn þá en atvinnumannaferillinn fer vissulega af stað. Emin hefur barist þrisvar sinnum, í Las Vegas, Mexíkó og Finnlandi, og unnið alla þrjá bardagana. „Ég var bara frekar svekktur með síðasta bardaga að hafa ekki klárað hann [K.O.] en ég er að ná lotunum inn á móti frekar seigum andstæðingum. Ég er þakklátur fyrir það og hef náð í reynslu í þessum atvinnumannastíl. Að keppa ekki í bol, í minni hönskum. Ég er orðinn frekar vanur þessu núna. Þegar ég stíg inn í hringinn núna er ég miklu þægilegri og miklu betri.“ Dreymir um að keppa á Íslandi Sú hindrun er hins vegar á hans vegi að atvinnumannahnefaleikar eru ekki löglegir á Íslandi. Emin kvartar hvorki né kveinar yfir ástandinu en dreymir um að keppa á Íslandi. „Mig langar að keppa á Íslandi. Það hefur alltaf verið markmiðið okkar, draumurinn okkar, og við munum ná að gera það. En ef ég þarf að fara eitthvert til útlanda, keppa einhvers staðar í útlöndum, hvað sem ég þarf að gera. Ég geri það bara, læt það bara virka. Skiptir engu máli hvað gerist, við bara höldum áfram.“
Box Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Hjalti stýrir Skagamönnum Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Spurs knúðu fram oddaleik Tilfinningaríkur sigur Littler Dagskráin í dag: Baráttan um þriðja sætið í Bestu deild karla Snýr aftur heim til Víkinga Sabalenka þakklát eftir sigur Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Martin valinn mikilvægastur Allegri ráðinn þjálfari Napoli Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Sjá meira