Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Jakob Bjarnar skrifar 10. apríl 2026 16:37 Ásdís er ómyrk í máli en hún er ekki sú eina sem hefur gagnrýnt aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Það hafa einnig Vilhjálmur Birgisson og Hildur Sverrisdóttir gert, afdráttarlaust. vísir/vilhelm Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, segir stjórnvöld hafa misst tökin á efnahagsástandinu og hún beini spjótum að öllum öðrum en sér sjálfum. Ásdís er ómyrk í máli. „
Stjórnvöld hafa misst tökin á efnahagsástandinu. Á sama tíma og skattar hafa verið hækkaðir á fólk og fyrirtæki þá er verðbólgan að aukast og vextir að hækka. Það eru því vonbrigði að sjá ríkið stíga fram með þessum hætti. Engin lausn, aðeins verið að plástra yfir vandann tímabundið,“ segir Ásdís meðal annars í Facbook-færslu. Svipaðar raddir hafa heyrst eftir að ríkisstórn Kristrúnar kynnti sérstaklega efnahagsaðgerðir sínar í hádeginu en Vísir greindi skilmerkilega frá þeim. Ásdís segir að í gær hafi Kópavogsbær kynnt að gjaldskrárhækkanir á barnafjölskyldur yrðu takmarkaðar við 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans á árinu 2026. Að sögn Ásdísar er sú aðgerð til þess fallin að stuðla að varanlegri hjöðnun verðbólgu og það sem skiptir öllu máli – stuðla að sátt á vinnumarkaði. Ásdís er ómyrk í máli og telur aðgerðaráætlunina mikil vonbrigði.vísir/vilhelm „Því var ég vongóð þegar ég sá blaðamannafund ríkisstjórnar auglýstan í tengslum við tímabundnar efnahagsaðgerðir gegn verðbólgu. Smá glæta að hér væri mögulega komin betrumbót og snjallt útspil eftir óþarfa álögur á fólk og fyrirtæki undanfarið.“ Plástrað yfir vandann tímabundið Kynningin olli Ásdísi verulegum vonbrigðum, því miður. „Ég bjóst við að stjórnvöld myndu stíga fram með góðu fordæmi og endurskoða sínar eigin gjaldskrárhækkanir. Þess í stað er öllum spjótum beint að öðrum en þeim sjálfum.“ Og Ásdís setur stoppmerki við eftirfarandi: Því miður dugar skammt að lækka tímabundið VSK á eldsneyti yfir sumarmánuði. Sú aðgerð gengur til baka í lok ágúst og stuðlar því ekki að varanlegri hjöðnun verðbólgu. Þá er engin lausn fólgin í því að efla verðlagseftirlit á fyrirtæki í landinu – okkur hefur aldrei í íslenskri hagsögu tekist að þvinga fram verðstöðugleika með aukni eftirliti, boðum og bönnum. Ásdís segir það hagsmunamál allra að ná tökum á verðbólgunni og ljóst að gríðarlegur samfélagslegur kostnaður mun raungerast ef kjarasamningar losna í haust. En stjórnvöld hafi misst tök á efnahagsástandinu. Hildur vitnar í fjármálaráðherra ríkisstjórnar Kristrúnar og segir þetta að pissa-í-skóinn-sinn-hagfræði.vísir/vilhelm „Á sama tíma og skattar hafa verið hækkaðir á fólk og fyrirtæki þá er verðbólgan að aukast og vextir að hækka.“ Ásdís sér enga lausn boðaða af hálfu ríkisstjórnarinnar, aðeins verið að plástra yfir vandann tímabundið. Sovétið hefði orðið stolt af Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins er á svipuðum slóðum í gagnrýni sinni á Facebook. Hildur segir að ríkisstjórnin hefði allt eins getað sent út tölvupóst um aðgerðir sem fyrir skömmu voru sagðar af ráðherrum sömu ríkisstjórnar að „hjálpi okkur ekki“ til að ná niður verðbólgunni heldur væri það að „pissa í skóinn sinn hagfræði“. „En samt er keyrt af stað með aðgerðirnar sem ku ekki hjálpa á meðan undirliggjandi Planinu er haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist á sinni stöðugu leið hægt og rólega út í skurð. Jú og með dassi af verðlagseftirliti og kvöðum sem sovétið hefði verið stolt af. Maður bara tekur ofan svei mér þá.“ Vilhjálmur Birgisson telur aðgerðaráætlunina úr einhverri allt annarri átt en vænta megi af ríkisstjórn sem kennir sig við jöfnuð.vísir/vilhelm Þannig má segja að aðgerðarætlunin hafi fallið í grýttan jarðveg. Úr annarri átt, Vilhjálmur Birgisson verkalýðsleiðtogi á Akranesi, sem hefur mikið um að segja hvernig kjarasamingamál þróast, gefur lítið fyrir þessa aðgerðaráætlun sem hann telur ógáfulega. Hann segir áætlunina kynnta án alls samráðs. „Við fengum þær einfaldlega í hendurnar á sama tíma og almenningur. Og það sem verra er – þetta eru ekki þær sértæku aðgerðir sem við höfðum kallað eftir. Þetta eru ekki aðgerðir sem styðja tekjulágt fólk, fólkið sem Samfylkingin þykist á tyllidögum vera að berjast fyrir!“ segir Vilhjálmur á samfélagsmiðlum.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Kópavogur Kjaramál Verðlag Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Loksins slíðrað sverðin Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Loksins slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Sjá meira