Erlent

Íri réðst á banda­ríska her­flug­vél með öxi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Manninum tókst að valda talsverðu tjóni.
Manninum tókst að valda talsverðu tjóni. Skjáskot

Maður hefur verið handtekinn á Írlandi fyrir að hafa brotist inn á afgirt svæði flugvallar í Clare-sýslu, klifrað upp á bandaríska herflugvél og valdið henni tjóni.

Hinn grunaði er á fimmtugsaldri, samkvæmt umfjöllun Guardian, og sætir gæsluvarðhaldi fyrir skemmdarverkin. Hann mun hafa brotist inn á svæði á Shannon-flugvellinum í Clare-sýslu sem er bannað óviðkomandi og prílað upp á bandaríska hergagnaflutningavél af gerðinni C-130 Hercules.

Myndband af athöfnum mannsins hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum í dag og í gær. Samkvæmt umfjöllun Irish Star hafði hann öxi meðferðis og hjó ítrekað í væng flugvélarinnar.

Rannsókn á málinu stendur yfir samkvæmt tilkynningum írsku lögreglunnar en auk þeirra tók flugvallaröryggisliðið, slökkviliðið og írskir hermenn þátt í viðbragðinu.

Tveimur flugferðum var frestað á meðan svæðið var tryggt og flugvél frá Lourdes í Frakklandi var gert að hringsóla yfir vellinum í tæpan hálftíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×