„Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 12. apríl 2026 13:01 Almyrkvinn 12. ágúst 2026 gengur yfir Norðurskautið, Grænland, Ísland, Portúgal og Spán. Í norðurhluta Norður Ameríku, Skandinavíu, Evrópu og vestur Afríku sést deildarmyrkvi. Almyrkvinn er lengstur 2m 18s í hafinu skammt vestan við Látrabjarg á Íslandi. Sævar Helgi Bragason og Andreas Dill Ef vel tekst til getur almyrkvi á sólu verið gríðarleg markaðssetning á landinu og mikilvægt að stjórnvöld nýti tækifærið og fjárfesti í ferðaþjónustunni og markaðssetningu á landinu. Þetta segir formaður fyrirtækja í hótelrekstri.
Almyrkvi á sólu mun sjást á Íslandi í fyrsta sinn í 72 ár þann 12. ágúst. Almyrkvaslóðin mun liggja yfir Vestfirði, Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga og er þegar orðið vart við gríðarlegan áhuga erlendra ferðamanna á að sækja Ísland heim í tengslum við atburðinn. „Já ég held nú að á vestanverðu landinu sé orðið ansi þétt bókað þar sem sólmyrkvinn sést best. Þannig við verðum að vona að þetta takist vel til, að það verði gott veður og bjart því það getur haft mikil áhrif á fólksflutninga ef það verður sól á Reykjanesi en skýjað fyrir vestan,“ segir Kristófer Oliversson, formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu. Ef að vel tekst til geti atburðurinn verið gríðarleg markaðssetning á landinu, sérstaklega ef það birtast fallegar myndir á samfélagmiðlum. Kristófer segir mikilvægt að stjórnvöld nýti tækifærið og fjárfesti í markaðssetningu á landinu, enda muni það skila sér til lengri tíma litið. Það sé miður að stjórnvöld hafi dregið að sér hendina í markaðsmálum þegar kemur að ferðaþjónustunni. „Við erum alltaf í samkeppni við Norðmenn því við erum að deila við þá um fleira en síld og makríl. Þeir hafa veitt miklu, miklu meira fjármagni í markaðssetningu á Noregi en við höfum gert og það borið mikinn árangur hjá þeim þannig það er tímabært að það verði hugsað til okkar í þessum efnum.“
Ferðaþjónusta Almyrkvi 12. ágúst 2026 Tengdar fréttir Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Stórstjarnan Björk var rétt í þessu að tilkynna Sólmyrkvahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði 12. ágúst næstkomandi þar sem hún þeytir skífum ásamt öflugum hópi tónlistarfólks. 8. apríl 2026 13:02 Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Stjörnu-Sævar segir gervigreindina plágu sem kaffæri réttum upplýsingum með bulli og ljótleika. Máli sínu til stuðnings deilir hann aragrúa skjáskota af fölsuðum myndum af sólmyrkva á Suðurskautslandinu. Óttast hann að Íslendingar muni verða fyrir barðinu á svipuðu falsi vegna almyrkva á Íslandi í ágúst. 19. febrúar 2026 13:30 Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira
Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Stórstjarnan Björk var rétt í þessu að tilkynna Sólmyrkvahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði 12. ágúst næstkomandi þar sem hún þeytir skífum ásamt öflugum hópi tónlistarfólks. 8. apríl 2026 13:02
Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Stjörnu-Sævar segir gervigreindina plágu sem kaffæri réttum upplýsingum með bulli og ljótleika. Máli sínu til stuðnings deilir hann aragrúa skjáskota af fölsuðum myndum af sólmyrkva á Suðurskautslandinu. Óttast hann að Íslendingar muni verða fyrir barðinu á svipuðu falsi vegna almyrkva á Íslandi í ágúst. 19. febrúar 2026 13:30