„Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ Hjörvar Ólafsson skrifar 12. apríl 2026 19:58 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gat andað léttar þökk sé sigurmarki Alexanders Rafns Pálmasonar. Vísir/Viktor Freyr Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjáflari KR, sagði að leikmenn sínir hafi ekki náð að losa bönd sviðsskrekksins af sér þegar liðið fékk Keflavík í heimsókn í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Meistaravelli í kvöld. Það sé þó merki um karakter og aukinn þroska að náð að kreista fram sigur. „
Við náðum eiginlega aldrei að losna við sviðskvíðann og losa okkur við skrekkinn sem er oft í fyrsta deildarleik tímabils. Við vorum að missa boltann á hættulegum stöðum og sendingar voru ekki nógu nákvæmar. Við náðum ekki að nýta okkur það nægilega vel að vera mun meira með boltann. Þá vantaði svolítið upp á grimmd í návígjum og ákefð í sóknarleiknum,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, um leikinn. „Hafandi sagt það þá sýndum við karakter að koma til baka eftir að hafa lent undir og þroskamerki að bregðast vel við því mótlæti. Það er gaman að sjá tvo uppalda KR-inga og hæfileikaríka leikmenn, Stefán Árna og Alexander Rafn, koma inná og setja mark sitt á leikinn,“ sagði Óskar Hrafn enn fremur. „Það riðlaði svolítið taktinum í okkar leik að missa Arnar Frey meiddan af velli. Ekki það að Halldór Snær kom flottur inn í markið og stóð sig vel þá eru þetta markmenn sem spila leikinn á ólíkan hátt og mér fannst það taka svolítinn tíma að bregðast við því að vera komnir með Halldór Snær í markið. Ég ekki viss um hvers eðlis meiðslin á Arnari Frey eru. Þetta lítur ekki vel út en hann fer í myndatöku í vikunni og þá sjáum við hvað setur,“ sagði hann. „Við verðum að virða það að hafa náð í stig á móti öflugu Keflavíkurliðið sem lét okkur svo sannarlega hafa fyrir hlutunum hér í kvöld. Við áttum í erfiðleikum með Stefán Ljubicic og að brjóta það á bak aftur. Það tókst hins vegar og við erum ánægðir með það. Nú tekur við undirbúningur fyrir annan erfiðan leik við Þór,“ sagði Óskar um framhaldið.
Besta deild karla KR Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira