„Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Freyja Þórisdóttir skrifar 14. apríl 2026 16:52 Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar. Vísir Samdráttur í samfélaginu skilar sér í því að minna er ráðið í sumarafleysingar. Harðnað hefur á dalnum en forstjóri Vinnumálastofnunar segir það marktækt að kólnun í atvinnulífinu sé enn ríkjandi og að atvinnuleysi sé meira en undanfarin ár. „
Við höfum ekki enn orðið vör við að fólk sé í vandræðum með sumarstörf en það kemur náttúrulega líka lítið til okkar en það sem við vitum fyrir víst er að það hefur harðnað á dalnum,“ segir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, í samtali við fréttastofu Vísis í dag. Á opnum fundi þar sem Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri mættu fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í febrúar kom fram að skýr merki væru um kólnun á vinnumarkaði. Því til stuðnings var bent á nýlega könnun meðal fyrirtækja þar sem kannað var hvort skortur væri á vinnuafli. Seðlabankinn stendur fyrir könnuninni reglulega. Aðeins tíu prósent fyrirtækja svöruðu játandi. Eftir því sem fram kom í frétt Viðskiptablaðsins hefur hlutfallið aðeins tvisvar mælst jafn lágt. Það er í kjölfar efnahagshrunsins og þegar heimsfaraldur Covid-19 gekk yfir. „Við vitum að það er þyngra fyrir fæti að fá vinnu og það tekur lengri tíma. Við merkjum það alveg hér hjá okkur,“ segir Unnur þá og bætir við að marktæk áframhaldandi kólnun sé í atvinnulífinu. Vonandi verði uppsveiflan góð í ár Atvinnuleysi í mars mældist 0,1 prósentum minna en í febrúar eða 4,8 prósent. Unnur segir þetta vera sömu þróun og þau sjái oftar en ekki á vorin en atvinnuleysi mælist yfirleitt mest í upphafi árs en lækkar svo þegar fyrirtæki byrja að ráða inn fólk fyrir sumarið. Í ár séu hins vegar talsvert fleiri skráðir atvinnulausir en á sama tíma í fyrra en í mars 2025 stóð atvinnuleysi í 4,2 prósentum. „Þessi árstíðabundna uppsveifla er aðeins að byrja og vonandi verður hún bara góð, þetta er að mjakast upp á við en það er þyngra núna heldur en á sama tíma í fyrra,“ segir Unnur. Til marks um þetta má geta þess að í tilkynningu frá Bláa lóninu hf. segir að í ár hafi þeim borist mesti fjöldi umsókna sem fyrirtækið hefur fengið til þessa. Ríflega 7.500 umsóknir bárust um 200 störf sem ráðið verður í fyrir komandi sumar hjá félaginu. Það er rúm þreföldun frá því sem áður hefur verið.
Vinnumarkaður Atvinnurekendur Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira