Handbolti

Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöful­lega ó­sann­gjarnt“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Theresa Claesson Andreasson lést eftir baráttu við krabbamein,
Theresa Claesson Andreasson lést eftir baráttu við krabbamein, Radio Haugaland

Theresa Claesson Andreasson, fyrrverandi landsliðskona Svía í handbolta, er látin en hún var aðeins 54 ára.

Claesson Andreasson lést úr krabbameini en það staðfestir fjölskylda hennar við dagblaðið Lysekilsposten.

Handboltakonan lék 89 landsleiki fyrir Svíþjóð á farsælum ferli. Hún var ein besta handboltakona Svíþjóðar í upphafi 21. aldar,

„Þetta er svo djöfullega ósanngjarnt,“ sagði eiginmaður hennar, Henrik Andreasson, við Lysekilsposten.

„Ég finn fyrir gríðarlegu tómarúmi en líka stolti yfir því sem við höfum áorkað saman á 35 árum, segir eiginmaðurinn með kökkinn í hálsinum.

Fyrir tíu árum greindist Theresa með ágengt brjóstakrabbamein og neyddist til að láta fjarlægja annað brjóstið.

„Við héldum að það hefði tekist að ná tökum á því en í lok nóvember 2023 kom brjóstakrabbameinið aftur og þá hafði það sest í beinin. Þá fengum við meira og minna að vita að það væri ólæknandi. Hún átti svo tvö alveg ágæt ár en síðan í desember í fyrra hefur henni hrakað hægt og rólega og á föstudagsmorgun sofnaði hún svefninum langa,“ sagði Henrik við Sportbladet.

Hann spilaði sjálfur handbolta í efstu deild með Sävehof og Kroppskultur og spilaði einnig á Spáni og í Danmörku þegar Theresa varð atvinnumaður þar.

Á meðan elsti sonurinn Vincent (23 ára) hefur lagt fyrir sig hnefaleika er yngri bróðirinn Arvid (20 ára), einn efnilegasti handboltamaður Svíþjóðar og talinn framtíðarmaður landsliðsins, á línunni.

Arvid, sem var lykilmaður þegar Svíþjóð vann Evrópumót átján ára landsliða fyrir einu og hálfu ári, er nú í miðri úrslitakeppni sænsku deildarinnar með Alingsås HK.

„Arvid er auðvitað í mjög erfiðri stöðu núna. Hann þurfti að sjálfsögðu að sitja hjá í öðrum og þriðja leik í átta liða úrslitum vegna þessa. En hann ætlar að reyna að spila fjórða leikinn í átta liða úrslitum á morgun, eins og staðan er núna,“ sagði Henrik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×