„Ég get ekki breytt þessu“ Aron Guðmundsson skrifar 16. apríl 2026 08:02 Arnar Freyr þarf að bíta í það súra að bíða lengi eftir næsta leik sínum í Bestu deildinni. Vísir/Sigurjón Gamanið var stutt hjá Arnari Frey Ólafssyni, markverði KR, sem meiddist strax í fyrsta leik liðsins í Bestu deildinni. Fyrst var óttast að tímabilinu hjá honum væri lokið en jákvæðari fréttir hafa borist síðan þá.
Eftir langt og strangt undirbúningstímabil og eftir að hafa gert markvarðarstöðuna hjá KR að sinni meiddist Arnar á áttundu mínútu í fyrstu umferð Bestu deildarinnar í leik gegn Keflavík. Í ljós kom að sin hafði slitnað í hné hans. Fyrst um sinn var talið að tímabilinu hjá honum væri lokið en nú þykir líklegt að það muni taka Arnar fjóra mánuði að koma sér aftur í leikform. Hann gæti því náð lokahluta tímabilsins. „Til að byrja með hugsar maður um alla vinnuna sem maður hefur lagt í þetta. Að hún sé farin í vaskinn,“ segir Arnar í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Maður var farinn að sjá fram á að vera fara strax aftur í annað undirbúningstímabil. Eins þreytt og það er. En jákvætt að maður geti mögulega náð hluta af tímabilinu.“ Arnar gekk í raðir KR í fyrra og hafði gert vel í að stimpla sig inn sem aðalmarkvörður liðsins í fremur sérstöku uppleggi KR sem felur það í sér að markvörður liðsins stígur hærra upp á völlinn og tekur þátt í uppspili. „Maður þarf að hlaupa helvíti mikið. Ég held við séum að hlaupa mun meira en markverðir í öðrum liðum. Þegar að maður er að koma til baka held ég að þetta verði eins og fyrir útileikmann að koma til baka. Maður þarf líka að komast í hlaupastand. Það verður áskorun en við erum klárir í hana.“ „Þetta er leikstíll sem mér hefur alltaf langað að spila. Það er alveg gulrót að koma til baka eins fljótt og maður getur til þess að fá að spila þennan fótbolta aftur. Svo erum við með geggjað lið. Maður vill taka eins mikinn þátt í þessu og maður getur.“ Þrátt fyrir að meiðslin séu högg eyðir Arnar ekki miklum tíma í að svekkja sig á hlutunum. „Fyrst þegar að þetta gerist er þetta alveg erfitt. Maður verður tilfinningaríkur en þegar maður er farinn að hugsa meira út í þetta þá horfi ég bara á þetta þannig að ég get ekki breytt þessu. Ég reyni bara frekar að komast í gegnum þetta. Það er ekkert sem ég get gert til að snúa þessu við.“
Besta deild karla KR Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira