Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Freyja Þórisdóttir skrifar 16. apríl 2026 13:28 Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, stillir sér upp í tilefni kaupanna ásamt Hilmari Gunnarssyni, fráfarandi ritstjóra Mosfellings. Aðsend Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, hefur fest kaup á bæjarblaðinu Mosfellingi og tekur við rekstri þess með það að markmiði að byggja ofan á sterkan grunn blaðsins. Þá hefur nýr ritstjóri verið ráðinn til starfa samhliða kaupunum.
Þessu er greint frá í fréttatilkynningu um kaupin en Simmi og sjónvarpsmaðurinn Hugi Halldórsson héldu úti hlaðvarpinu 70 mínútur þar til í mars síðastliðnum. Simmi hóf nýverið störf hjá Sýn og því væri það að selja kostun í hlaðvarpi til hliðar „hagsmunaárekstur“ að hans mati. Simmi hefur rekið veitingastaðinn Barion í gömlu Arion banka húsi í Mosfellsbæ og var valinn Mosfellingur ársins árið 2020. En Mosfellingurinn er að sögn Simma „ekki bara miðill, hann er hluti af sjálfsmynd bæjarins“. Blaðið hefur verið undir ritstjórn Hilmars Gunnarssonar í yfir tvo áratugi og í tilkynningunni segir að „undir hans stjórn hafi blaðið fest sig í sessi sem einn af hornsteinum upplýsinga og tengingar í bænum“. Simmi segir það mikinn heiður að taka við slíku verkefni og byggja áfram á því trausti sem hefur skapast í gegnum árin og segir jafnframt „að blaðið eigi að vera rödd fólksins í bænum og vettvangur þar sem sögur, viðburðir og mannlíf fái að njóta sín.“ Við ætlum að halda í það sem gerir blaðið sérstakt, en jafnframt þróa það áfram í takt við tímann,“ segir Simmi en í tilkynningunni segir að með kaupunum hyggist Sigmar styrkja miðilinn enn frekar, bæði í prenti og á stafrænum vettvangi, og skapa ný tækifæri fyrir fyrirtæki og stofnanir til að ná til íbúa svæðisins með markvissari hætti. Nýtt teymi skipað Mosfellingum Í lok janúar var greint frá því að Hilmar væri nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ en hann var einn í framboði til oddvita. Hafrún Hafliðadóttir hefur verið ráðin ritstjóri hans í stað og mun leiða efnisstefnu og ritstjórn blaðsins. En þess má geta að hún og Simmi eru saman og mættu um miðjan mars á frumsýningu Taskmaster í Smárabíói. Sigmar Vilhjálmsson, starfar á auglýsingadeild Sýnar, en kærasta hans er hinn nýráðni ritstjóri Mosfellings, Hafrún Hafliðadóttir.Hulda Margrét Ólafsdóttir Davíð Gunnarsson hefur verið ráðinn umbrotsmaður og mun bera ábyrgð á útliti og framsetningu þess. Bæði eru þau Mosfellingar og í tilkynningunni kemur fram að „byggja eigi upp teymi úr heimafólki sem þekkir vel til samfélagsins og styrkir þannig tengingu blaðsins við nærumhverfið“. Sigmar mun sjálfur ekki taka þátt í daglegum rekstri blaðsins, heldur leggja áherslu á stefnumótun og frekari uppbyggingu miðilsins. Hilmar Gunnarsson, fráfarandi ritstjóri Mosfellings, segir mikilvægt að miðillinn haldi áfram að þróast og vaxa. „Mosfellingur hefur alltaf verið byggður á tengingu við fólkið í bænum og það skiptir mig máli að sá andi haldist. Ég tel að Sigmar komi inn með ferska sýn og kraft sem getur styrkt miðilinn enn frekar á næstu árum,“ segir hann og bætir svo við „að það hafi verið ánægjulegt að leiða Mosfelling í gegnum árin og sjá hvernig hann hefur vaxið með samfélaginu. Nú taki við nýr kafli og hann sé sannfærður um að blaðið sé í góðum höndum“. Simmi segir að virðing fyrir arfleifð Mosfellings sé lykilatriði og að það sem Hilmar hafi byggt upp sé einstakt og að það verði áfram grunnurinn að þeirra vinnu. Þau ætli að byggja ofan á það, ekki breyta því sem virkar, heldur styrkja það og þróa áfram.
Tímamót Mosfellsbær Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira