Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Rafmagnslaust var í Mosfellsbæ og Grafarvogi, Grafarholti, Úlfarsárdal og á Kjalarnesi í Reykjavík í kvöld eftir að bilun kom upp í aðveitustöð við Korpu. Rafmagn er nú alls staðar komið aftur á, að sögn Veitna. Innlent 4.9.2026 20:24
Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Framtíð skíðasvæðisins í Skálafelli er á ný komin á borð sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verður beðin um að taka afstöðu til þess hvort endurskoða eigi samkomulag um uppbyggingu svæðisins frá árinu 2018. Innlent 3.9.2026 16:21
Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Bergþóra Kristinsdóttir, verkfræðingur, er nýr framkvæmdastjóri Malbikstöðvarinnar í Mosfellsbæ. Hún skrifaði meistararitgerð sína í verkfræði um malbik. Viðskipti innlent 3.9.2026 11:49
Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins aðstoðuðu í gærkvöldi við að ná svifvæng niður úr tré við Hafravatn. Vinsælt er að svífa á svifvæng á svæðinu. Innlent 21. ágúst 2026 09:52
Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Enn hafa engin viðtöl verið tekin vegna skipunar nýs lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu en vegna sumarleyfa lá ráðningarferlið niðri. Óljóst er hvenær nýr lögreglustjóri verður skipaður. Innlent 19. ágúst 2026 06:45
„Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Sumarball fyrir menntaskólanema gekk eins í sögu segja skipuleggjendur. Sex hundruð ungmenni skemmtu sér undir berum himni án allra vímuefna. Lífið 17. ágúst 2026 14:25
Rafmagnslaust í Mosfellsdal Rafmagnslaust í hluta Mosfellsdals en grafið var í háspennustreng á svæðinu í morgun. Búið er að staðsetja bilunina og unnið er að viðgerð. Innlent 14. ágúst 2026 11:21
Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Rafmagnslaust er í hluta Mosfellsbæ og Grafarvogs vegna bilunar en unnið er að viðgerð. Innlent 13. ágúst 2026 20:19
„Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Það var margt um manninn og mikið um dýrðir síðasta sólarhringinn á höfuðborgarsvæðinu en slökkviliðsfólk hafði þar af leiðandi í nægu að snúast. Vanalega er slökkviliðið ræst út talsvert oftar á dagvöktum en næturvöktum en því var öfugt farið í þetta skiptið. Innlent 9. ágúst 2026 11:22
Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Tilkynnt var um tvo vopnaða aðila í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt en að sögn tilkynnanda voru þeir ógnandi og árásargjarnir. Annar þeirri reyndist vopnaður öxi og hinn hamri en þeir voru handteknir og færðir á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Lagt var hald á vopn í málinu en ekki liggur fyrir hvort bæði öxin og hamarinn hafi verið haldlögð. Innlent 5. ágúst 2026 06:39
„Við erum svolítið strand“ Lítið er að frétta af rannsókn lögreglu á innbroti í minkabúi í Mosfellsdal þar sem fjölda minka var sleppt úr búrunum sínum. Enn á eftir að fara yfir töluvert af myndefninu. Innlent 4. ágúst 2026 14:34
Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa Engir minkar hafa ratað í gildrur í nágrenni við Dalsbú síðastliðna þrjá sólarhringa og aðgerðir hafa gengið vonum framar að sögn bæjarstjóra Mosfellsbæjar. Innlent 4. ágúst 2026 12:40
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Minkabóndinn í Mosfellsdal segist hafa afhent lögreglu rauðtússaðan miða sem fannst á vettvangi skemmdarverka sem unnin voru á búinu. Hann ræður ekkert í tölurnar sem krotaðar voru aftan á miðann en hann telur þó ólíklegt að „hryðjuverkamennirnir“ hafi skilið eftir sig ummerki. Innlent 1. ágúst 2026 19:15
Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Vel gengur að fanga minka í Mosfellsdal og lítið af tilkynningum berast til bæjarins, segir Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri. „Við erum að fá mjög lítið af tilkynningum. Þetta gengur bara vel.“ Innlent 1. ágúst 2026 17:12
Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Steinunn Þórðardóttir lenti í miður skemmtilegri upplifun eftir að hafa hlaupið tuttugu kílómetra á Úlfarsfelli á fimmtudaginn. Eftir að hún kom heim í Hlíðarnar skaust minkur upp undan húddinu á bíl hennar, stökk af bílnum og hljóp í átt að Kringlumýrabraut. Lífið 31. júlí 2026 17:51
Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Rannsókn lögreglu á innbrotinu í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal stendur enn yfir. Ummerki benda til þess að fleiri en einn kunni að hafa verið að verki en það hefur ekki verið staðfest. Á sama tíma hefur ástandið í dalnum róast og ekkert tilfelli verið staðfest í byggð. Innlent 31. júlí 2026 12:38
Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Dýraverndarsamband Íslands segir nauðsynlegt að aðgerðir vegna minka í Mosfellsdal fari fram á mannúðlegan hátt og að sé nauðsynlegt að aflífa dýrin, sé það framkvæmt í samræmi við lög um velferð dýra. Innlent 31. júlí 2026 08:22
Staðan orðin „þokkalega góð“ Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að vel hafi gengið að fanga minka sem sluppu úr Dalsbúi í gærmorgun eftir að skemmdarverk var unnið á búinu. Verkefni dagsins í dag sé að fá tölu á þá minka sem sluppu út en þeir kunna að vera í þúsunda tali. Flestir minkanna hafa ekki vogað sér út fyrir öryggisgirðinguna við búið. Innlent 30. júlí 2026 12:35
Fleiri en einn hafi verið að verki Aðgerðir í Mosfellsdal gengu vel í nótt og halda áfram í dag að sögn bæjarstjóra Mosfellsbæjar. Tilkynningar næturinnar megi telja á fingrum annarrar handar en aðgerðarstjórnin vilji vera með vaðið fyrir neðan sig. Honum þyki ekki ólíklegt að um sömu aðila sé að ræða og í innbroti í svínabú og kjúklingabú fyrr í sumar og að fleiri en einn hafi verið að verki. Innlent 30. júlí 2026 10:39
Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Dýralæknafélag Íslands fordæmir harðlega meint innbrot og skemmdarverk á þremur búum og að dýrum hafi verið sleppt úr haldi. Slík atvik staðfesti dómgreindarleysi þeirra sem að aðgerðunum standi. Félagið lýsir yfir stuðningi við lögreglu, Matvælastofnun og aðra sem koma að aðgerðunum í Mosfellsdal. Innlent 30. júlí 2026 09:34
Mosfellsdalur minnti á vígvöll „Þetta líktist næstum því vígvelli,“ sagði Tómas Arnar Þorláksson, fréttamaður sem fylgt hefur eftir atburðum í Mosfellsdal í dag, en þar hefur mátt heyra skothvelli á meðan drónar sveima yfir. Fréttir bárust af því í morgun að þúsundum minka hefði verið sleppt úr búrum sínum á Dalbúi, síðasta minkabúi landsins, og er unnið hörðum höndum að því að ná stjórn á minkafaraldrinum. Innlent 30. júlí 2026 00:02
„Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Eigandi síðasta minkabús landsins ætlar ekki að gefast upp þrátt fyrir að bróðurparti minkanna hafi verið sleppt í morgun. Skothvellir hafa ómað í Mosfellsdal í dag. Innlent 29. júlí 2026 15:23
„Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Íbúi í Mosfellsdal og nágranni Dalsbús, varð var við nokkra minka á kreiki í garðinum heima hjá sér fyrr í dag. Ástandið í dalnum sé nokkuð súrrealískt enda ómi byssuskot um dalinn og lögreglan fljúgi drónum til aðstoðar við leit að minkunum. Innlent 29. júlí 2026 12:06
Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Íbúar og ræktendur í Mosfellsdal og nærsveitum eru verulega áhyggjufullir eftir að hundruð ef ekki þúsundir minka sluppu úr búrum sínum í morgunsárið. Lögregla rannsakar innbrot í búið. Brotist var inn í svínabú í maí og kjúklingabú í júní. Innlent 29. júlí 2026 10:55
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent