Hlustun á Bó snaraukist Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. apríl 2026 14:06 Björgvin Halldórsson ákvað að hafa tónleikana líka í streymi í ár vegna heimsfaraldursins. Mummi Lú Hlustun á poppgoðsögnina Björgvin Halldórsson hefur snaraukist frá því hann lést 9. apríl síðastliðinn. Mánaðarleg hlustun á Björgvin á Spotify hefur frá síðasta mánuði aukist um tæp fjörutíu prósent og á Youtube hefur áhorfið aukist um rúm 400 prósent. Íslenskar sjónvarpsveitur hafa sömuleiðis grafið upp og gert aðgengilega ýmsa gullmola með Björgvini gegnum tíðina.
Hlustunartölurnar má sjá á vefsíðu greiningartólsins Soundcharts en þar er hægt að fylgjast með hlustun og áhorfi á tónlistarmönnum á helstu tónlistarveitum og samfélagsmiðlum. Þegar síða Björgvins Halldórssonar er skoðuð á Soundcharts má sjá yfirlit yfir þau lönd og borgir þar sem er hlustað mest á hann. Á eftir Íslandi koma Danmörk og Noregur sem kemur kannski ekki á óvart vegna fjölda Íslendinga sem eru búsettir þar. Samkvæmt Soundcharts eru mánaðarlegir hlustendur á Björgvin á Íslandi síðasta mánuðinn um 36,9 þúsund sem er 37,6 prósent aukning frá síðasta mánuði. Áhorfið á Bó á Youtube er ekki mikið minna síðasta mánuðinn, um 32,9 þúsund Íslendinga hafa horft á myndbönd þar, en aukningin milli mánaða er þó gríðarleg, eða 447,8 prósent. Hlustendurnir eru tæplega sjöhundruð talsins í Danmörku og á fimmta hundrað í Noregi. Hins vegar hefur hlustunin líka aukist töluvert þar, um rúm 66 prósent í Danmörku og 45 prósent í Noregi. Þá er hægt að sjá á síðunni þær borgir þar sem hlustunin er mest. Reykjavík trónir á toppnum með tæplega 24 þúsund hlustendur, þar á eftir kemur Kópavogur með rúm fjögur þúsund og loks Hafnarfjörður, heimabær skáldsins, með tæp þrjú þúsund. Hlustunin í Reykjavík hefur aukist um 36 prósent, í Hafnarfirði hefur hún aukist um tæp 47 prósent en í Kópavogi hefur hún aukist um helming. Viðtöl, sjónvarpsþættir og tónlist rifjuð upp Mörg hundruð manns hafa minnst Björgvins Halldórssonar í riti frá því hann lést. Fjölskylda og vandamenn, fjöldi kollega, samferðamenn og meira að segja forseti Íslands hafa minnst tónlistarmannsins. Björgvin hefði fagnað 75 ára afmæli í gær, 16. apríl, hefði hann ekki fallið sviplega frá. Í tilefni afmælisdagsins tilkynnti Hafnfarfjarðarbær að bærinn hefði samþykkt að vinna að sýningu um ævi og feril tónlistarmannsins. Áhuginn á Björgvini og tónlist hans hefur verið mikill í kjölfar andlátsins og hafa bæði Sýn og Ríkisútvarpið brugðist við með því að gera ýmsa þætti og kvikmyndir úr söfnum sínum aðgengileg á ný. Daginn sem Björgvin lést endursýndi Sýn þátt úr Kvöldstund með Eyþóri Inga þar sem hann fékk Björgvin í heimsókn til sín. Í gær var endursýndur þáttur úr Tónlistarmönnunum okkar þar sem Auðunn Blöndal ræddi við Bó um ferilinn. Í kvöld verða Bestu lög Björgvins sýnd á Sýn en það er upptaka frá tónleikum hans í Háskólabíói árið 2015. Allt þetta og meira til er aðgengilegt í flokknum „Þó líði ár og öld“ á sjónvarpsveitu Sýnar. Í spilara Vísis er síðan að finna fjölmargar klippur langt aftur í tímann með viðtölum, þáttum og tónleikum Björgvins. Til að mynda klukkutímalangan þátt af Bylgjunni órafmagnaðri þar sem Bó söng með börnum sínum, Krumma og Svölu. Á sarpi ríkisútvarpsins er að finna heimildarmyndina Maður sviðs og söngva frá 2018 eftir Ágúst Guðmundsson, viðtalið Björgvin - Bolur inn við beinið þar sem Þórhallur Gunnarssonar ræddi við Björgvin í tilefni af sextugsafmæli söngvarans árið 2011 og þátturinn Björgvin Halldórsson: 1979 þar sem söngferill hans var rifjaður upp. Farið verður yfir feril Björgvins, viðtöl og tónlist á Bylgjunni. Útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson mun síðan flytja minningarþáttinn „Bylgjan kveður Bó“ á Bylgjunni á sunnudaginn klukkan 12:20, beint eftir hádegisfréttir. Ívar og Björgvin voru vinir til áratuga, unnu lengi saman og Ívar fylgdi honum í gegnum árin bæði í lífi og starfi. Í þættinum heyrast brot úr viðtölum við Björgvin frá síðustu áratugum, tónlist hans verður spiluð og ferill goðsagnarinnar rifjaður upp.
Andlát Björgvins Halldórssonar Tónlist Sýn Bylgjan Ríkisútvarpið Spotify Streymisveitur Tengdar fréttir Útför Björgvins opin almenningi Útför tónlistarmannsins Björgvins Halldórssonar verður opin almenningi og fer hún fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 28. apríl klukkan 15. Björgvin lést þann 9. apríl og hefði orðið 75 ára í dag. 16. apríl 2026 19:26 Krummi kveður pabba sinn Tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson minnist föður síns goðsagnarinnar Björgvins Halldórssonar í einlægum texta í tilefni þess að í dag hefði hann orðið 75 ára. Krummi segist kveðja með brotið hjarta sem þó sé fullt þakklætis og fullt af minningum, ást og arfleifð sem lifi áfram í Krumma. Hann segir föður sinn á síðustu árum hafa átt erfitt vegna heilsu og það hafi haft mikil áhrif. 16. apríl 2026 11:02 Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi „Maður er mjög sorgmæddur en síðan fyllist maður einhverjum yl og gleði þegar maður sér þessi myndskeið sem sýna hvað hann gerði mikið fyrir íslenskt tónlistarlíf. Hann setti popptónlist í öndvegi og sinnti henni af mikilli elju alla tíð. Það er eitthvað sem við Íslendingar fílum.“ 9. apríl 2026 20:17 Svala minnist pabba síns Svala Björgvins, dóttir Björgvins Halldórssonar, minnist föður síns í fallegri færslu sem hún birti á Facebook í dag. Björgvin var bráðkvaddur að heimili sínu nú í morgun, 9. apríl, en hann var 74 ára gamall. 9. apríl 2026 15:30 Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Fleiri fréttir Hlustun á Bó snaraukist Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Laufey Lín sló í gegn á Coachella Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Söguleg stund í KR heimilinu Falinn gjóður vann Músíktilraunir Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Jay-Z breytir um nafn... aftur Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Hringdu kannski-stjarnan orðin mamma Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Herra Hnetusmjör er söngvari ársins „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Boy George keppir fyrir San Marínó Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Sjá meira
Útför Björgvins opin almenningi Útför tónlistarmannsins Björgvins Halldórssonar verður opin almenningi og fer hún fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 28. apríl klukkan 15. Björgvin lést þann 9. apríl og hefði orðið 75 ára í dag. 16. apríl 2026 19:26
Krummi kveður pabba sinn Tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson minnist föður síns goðsagnarinnar Björgvins Halldórssonar í einlægum texta í tilefni þess að í dag hefði hann orðið 75 ára. Krummi segist kveðja með brotið hjarta sem þó sé fullt þakklætis og fullt af minningum, ást og arfleifð sem lifi áfram í Krumma. Hann segir föður sinn á síðustu árum hafa átt erfitt vegna heilsu og það hafi haft mikil áhrif. 16. apríl 2026 11:02
Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi „Maður er mjög sorgmæddur en síðan fyllist maður einhverjum yl og gleði þegar maður sér þessi myndskeið sem sýna hvað hann gerði mikið fyrir íslenskt tónlistarlíf. Hann setti popptónlist í öndvegi og sinnti henni af mikilli elju alla tíð. Það er eitthvað sem við Íslendingar fílum.“ 9. apríl 2026 20:17
Svala minnist pabba síns Svala Björgvins, dóttir Björgvins Halldórssonar, minnist föður síns í fallegri færslu sem hún birti á Facebook í dag. Björgvin var bráðkvaddur að heimili sínu nú í morgun, 9. apríl, en hann var 74 ára gamall. 9. apríl 2026 15:30