„Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Valur Páll Eiríksson skrifar 17. apríl 2026 20:14 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gat fagnað sigri en var ósáttur við að sínir menn hafi misst einbeitinguna á seinni hluta leiksins. Vísir/Viktor Freyr Þau tvö mörk sem KR fékk á sig í 5-2 sigri á Þór frá Akureyri í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld sitja meira í Óskari Hrafni Þorvaldssyni, þjálfara KR, heldur en frábær frammistaða hans manna fram á við.
KR vann sannfærandi sigur sem var síst of stór. Þór skapaði sér þrjú færi í leiknum, öll undir lokin, og uppskar tvö mörk. KR hafði leitt 2-0 í hléi, komist 4-0 yfir en að lokum fór 5-2 eftir tvö skyndisóknarmörk gestanna að norðan. „Við töluðum um það fyrir leikinn að sleppa af okkur hlekkjunum, keyra svolítið á þetta með hátt orkustig. Ég held það hafi sýnt sig í sóknarleiknum okkar lungann af leiknum,“ sagði Óskar Hrafn um það hvað skóp sigur KR-inga í kvöld. Það sat hins vegar greinilega í honum að Þór hafi skorað tvö mörk, þá sérstaklega markið sem minnkaði muninn í 5-2 undir blálok leiks. „Við verðum að hætta að slökkva á okkur inni í teig í þau fáu skipti sem Þórsarar komast þangað. Ég held þeir hafi komist þrivsar inn í teig og skorað tvö mörk, með fullri virðingu. Við getum ekki skilið eftir mann opinn fyrir framan markið. Það gengur ekki, við verðum að hætta þessu,“ sagði Óskar eftir leik. „Margir tala um að mörk séu ódýr sem þú færð á þig. Þau eru ekkert ódýr. Þau eru klaufaleg og þau eru vegna þess að við missum einbeitingu. Við þurfum að sjá allavega til þess að við séum í manninum, að skilja hann ekki eftir einan. Þetta er eitthvað sem við þurfum að laga og getum ekki stungið hausnum í sandinn og sagt við unnum 5-2, geggjað. Sóknarleikurinn var frábær að mörgu leyti og auðvitað hefðum við getað skorað fleiri mörk en við verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega í þessari deild,“ sagði Óskar jafnframt, en var þó ekki hættur: „Við verðum að læra að halda einbeitingu út leikina á lykilaugnablikum. Annars erum við ekki að fara vera ógn í þessari deild. Þá verðum bara eitthvað lið sem spilar frábæran fóbolta og skorar fullt af mörkum en fær líka fullt á sig. Það er ekki endilega eitthvað sem við stefnum að. Menn hafa haldið að ég sé rosa glaður ef það fer 5-4 en það er ekki þannig. Ég vil frekar vinna 5-0 en 5-2. Við verðum að bæta okkur á þessum lykilaugnablikum. Við bara verðum að bæta okkur.“ Breyting var gerð á KR-liðinu frá naumum 3-2 sigri á Keflavík í fyrsta leik. Stefán Árni Geirsson byrjaði leikinn eftir fína innkomu þar og átti frábæran leik. Hrafn Tómasson, Krummi, var hins vegar besti maður vallarins. „Meðan Stefán Árni hafði kraft var hann virkilega flottur og bara eins og Stefán er þegar hann er í sínum gír. Þá er erfitt að eiga við hann. Krummi var að öðrum ólöstuðum besti maður vallarins. Hann var meiriháttar góður bæði með bolta og án bolta. Það er bara yndislegt að horfa á hvernig hann er að vaxa og þroskast. Það er frábært,“ segir Óskar Hrafn.
KR Besta deild karla Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira