Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. apríl 2026 15:16 Rúnar Traustason, oddviti Miðflokksins í Norðurþingi, gagnrýndi orðræðu Snorra Mássonar. Samsett Framboðslistar Miðflokksins í fjórum sveitarfélögum hafa gefið út að þeir styðji fjölbreytileikann. Yfirlýsingarnar koma í kjölfar orða varaformanns flokksins sem líkti flöggun regnbogafánans við „hugmyndafræðilega kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni“.
Orð Snorra Mássonar, varaformanns Miðflokksins, í pontu á Alþingi í vikunni hafa farið líkt og eldur um sinu um internetið. Fjöldi fólks hefur gagnrýnt orðalag hans en í ræðunni gagnrýndi hann sýnileika regnbogafánans, fána hinsegin fólks, í grunnskólum landsins. Samfélagsmiðlarnir fylltust af regnbogafánum í kjölfarið en meðal þeirra sem hvöttu fólk til að birta myndir af fánanum var tónlistarmaðurinn Páll Óskar. Snorri gagnrýndi á sama tíma að ekki mætti fara með börnin í kirkju, málflutningur sem féll ekki í geðið hjá Guðrúnu Karls Helgudóttur, biskupi Íslands. Hún tók undir orð Hildar Eirar Bolladóttur, sóknarprests í Akureyrarkirkju, sem sagði að kirkjan hefði engan áhuga á því að koma inn í skólana á kostnað regnbogafána og hinsegin fræðslu. Ekki taka allir Miðflokksmenn þá undir orð varaformannsins. Framboð Miðflokksins á Hornafirði reið á vaðið og sagðist vera talsmaður fjölbreytileikans. Aldrei hafi verið til umræðu að „reyna að hafa áhrif á eða setja útá hvernig fólk upplifir sjálft sig“. Þá birtist einnig færsla á Facebook-síðu M-lista samfélagsins, undirrituð af Rúnari Traustasyni, sem leiðir Miðflokkinn í Norðurþingi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Færslunni var eytt en hálfum sólarhring síðar birtist önnur færsla í sama dúr. „M-listi samfélagsins er á móti allri hatursorðræðu og Norðurþing er samfélag sem að allir eiga að vera velkomnir í. Þar af leiðandi getum við ekki verið sammála Snorra Mássyni í þessum málaflutningi. Það er bara staðan,“ segir Rúnar í samtali við fréttastofu. Framboð Miðflokksins í Borgarbyggð og Fjarðabyggð hafa einnig slegist í hóp þeirra sem segjast fagna fjölbreytileikanum. Síða flokksins í Fjarðabyggð deildi þeirri færslu sem Miðflokkurinn á Hornafirði birti og sagðist taka undir hvert orð samflokksmanna sinna. Miðflokkurinn í Borgarbyggð birti eigin færslu. „Miðflokkurinn í Borgarbyggð er nýr flokkur í Borgarbyggð sem hefur það eina markmið að bæta samfélagið fyrir okkur öll óháð kyni, kynhneigð, uppruna eða trú. Listinn er samsettur úr ólíkum hópi fólks sem á það sameiginlegt að vilja öllum vel,“ stendur í færslunni.
Miðflokkurinn Norðurþing Hinsegin Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Sjá meira