Íslenski boltinn

Bein út­sending: Spáin kynnt í Bestu deild kvenna

Valur Páll Eiríksson skrifar
Breiðablik er ríkjandi meistari.
Breiðablik er ríkjandi meistari.

Spá fyrirliða, forráðamanna og þjálfara í Bestu deild kvenna verður opinberuð við hátíðlega athöfn í híbýli Deloitte klukkan 12:30. Fundurinn verður sýndur beint á Vísi.

Fulltrúar allra liða deildarinnar verða á staðnum og mun Helena Ólafsdóttir renna yfir spána. Auk þess verður niðurstaða leikmannakönnunar kynnt og viðtöl tekin við fulltrúa liðanna.

Fundinn má sjá í beinu streymi í spilaranum. Bein útsending hefst klukkan 12:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×