Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. apríl 2026 12:34 Starmer ku hafa verið ævareiður yfir ákvörðun Robbins að segja honum ekki frá niðurstöðum UKSV. Robbins segir það hins vegar ekki hafa tíðkast að upplýsa ráðherra um niðurstöðurnar. Robbins mun leita réttar síns eftir að hafa verið látinn fjúka. Getty/Wikimedia Commons Olly Robbins, fráfarandi ráðuneytisstjóri breska utanríkisráðuneytisins, hefur staðfest að Keir Starmer forsætisráðherra vissi ekki að öryggisyfirvöld, UK Security Vetting, hefðu mælt gegn því að Peter Mandelson, sem Starmer hafði þá þegar skipað sendiherra í Washington, yrðu veittar öryggisheimildir.
Það var Guardian sem afhjúpaði málið á dögunum og Robbins var látinn taka pokann sinn í kjölfarið en það var hann sem ákvað að veita Mandelson öryggisheimild þrátt fyrir ráðleggingar UKSV. Robbins, sem var afdráttarlaus en dálítið miður sín þegar hann svaraði spurningum utanríkismálanefndar þingsins í morgun, sagði ekkert athugavert við ferlið sem slíkt; hann hefði virt hefðbundna vinnuferla. Starmer mætti fyrir þingið í gær, þar sem hann ítrekaði að hann hefði ekki vitað af því að Mandelson hefði fallið á prófinu. Líkt og fram kom hjá Robbins í morgun hafði hann hins vegar þegar greint frá skipun Mandelson áður en ákvörðun var tekin um að hann þyrfti að gangast undir ítarlega öryggisúttekt. Heimildarmenn hafa greint frá því við fjölmiðla að embættismenn hafi sætt miklum þrýstingi um að „klára málið“. Þúsundir opinberra starfsmanna undirgangast öryggismat áður en þeir hefja störf en eins undarlegt og það kann að hljóma á það á þó ekki við um kjörna fulltrúa. Mandelson hafði þannig ekki gengist undir ítarlegt öryggismat áður, þrátt fyrir að hafa verið ráðherra, heldur staðist almenna athugun (e. due diligence) af hálfu forsætisráðuneytisins. Utanríkismálanefndin virtist að mestu sátt við svör Robbins í morgun en eitt atriði mun eflaust kalla á frekari útskýringar og það er það hvort reynt var að villa fyrir honum þegar honum voru kynntar niðurstöður öryggismatsins. Ferlið að baki öryggisathugununum er afar strangt og gripið til ítrustu varúðar til að tryggja að persónulegar upplýsingar einstaklinga séu tryggðar. Robbins sagði að þannig hefði honum aðeins verið greint frá niðurstöðunum í samtali, þar sem honum hefði verið tjáð að Mandelson væri „á mörkunum“ en að menn hölluðust að því að neita ætti honum um öryggisheimild. We've published a letter from Sir Oliver Robbins, received ahead of our evidence session today.Read it here: https://t.co/1VfXhv54c2 pic.twitter.com/d6OdQlFSqO— Foreign Affairs Committee (@CommonsForeign) April 21, 2026 Forsætisráðuneytið hefur hins vegar greint frá tilvist eyðublaðs þar sem búið var að merkja við í tvo rauða reiti. Annað markið þýddi að verulegar áhyggjur væru uppi af afleiðingum þess að veita Mandelson öryggisheimildina og hitt að neita bæri honum um heimildina. Robbins sagðist í morgun ekki kannast við eyðublaðið og þá hefðu umræður átt sér stað um að grípa mætti til „mildandi“ aðgerða til að takmarka áhættuna sem stafaði af því að veita Mandelson öryggisheimild. Hann ítrekaði einnig að UKSV hefði ekki vald til að neita einstaklingum um heimildina, heldur lægi það vald í utanríkisráðuneytinu. Aðspurður sagðist Robbins hafa sætt stöðugum þrýstingi af hálfu embættismanna innan forsætisráðuneytisins um að samþykkja heimildina til handa Mandelson, þar sem þegar hafði verið greint frá skipun hans, en hann vildi hins vegar meina að þrýstingurinn hefði ekki haft áhrif á ákvörðun sína. Þá gekkst hann við því að hafa tekið ákvörðunina um veita Mandelson heimildina án þess að vita nákvæmlega hvað hefði hringt viðvörunarbjöllum hjá UKSV. Robbins sagði þó í erindi til utanríkismálanefndarinnar að það hefði ekki tengst tengslum Mandelson við Jeffrey Epstein. Robbins sagði afar mikilvægt að trúnaður ríkti um störf UKSV og gagnrýndi harðlega að svo virtist sem upplýsingum hefði verið lekið til Guardian.
Bretland Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Segir að honum hafi gengið illa að sofna í gærkvöldi af hræðslu Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Dúx í MH og talar fjögur tungumál Innlent Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Innlent Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Innlent Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Innlent „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Innlent SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Fleiri fréttir Veita sextán milljarða evra til Ungverjalands Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Sjá meira